Eir, Hamrar og Skjól hjúkrunarheimili

Yfirsjúkraþjálfari á Eir, Skjóli og Hömrum

Eir, Hamrar og Skjól hjúkrunarheimili  •  Onsite  •  1 day ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Við leitum að öflugum og metnaðarfullum yfirsjúkraþjálfara til að leiða starf sjúkraþjálfunar á hjúkrunarheimilunum Eir, Skjóli og Hömrum.

Innan starfssviðs er meðal annars þátttaka í og skipulagning sjúkraþjálfunar fyrir endurhæfingardeild Eirar þar sem rekið er öflugt endurhægfingarstarf í samstarfi við Landspítala.

Yfirsjúkraþjálfari sér um að starfsemi sjúkraþjálfunar á heimilunum gangi sem best og samræmist stefnu og markmiðum þeirra.

Um er að ræða ábyrgðarmikið og mikilvægt hlutverk þar sem lögð er áhersla á fagleg vinnubrögð, þverfaglegt samstarf og einstaklingsmiðaða þjónustu við íbúa og skjólstæðinga. Yfirsjúkraþjálfari ber ábyrgð á skipulagningu og þróun sjúkraþjálfunar ásamt daglegri faglegri forystu innan deildarinnar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fagleg stjórnun , rekstur og ábyrgð á starfsemi sjúkraþjálfunar á heimilunum Eir, Skjól og Hömrum
  • Yfirumsjón með skipulagningu, þjónustu, mönnun og forgangsröðun verkefna.
  • Leiðsögn, stuðningur og þróun starfsfólks sjúkraþjálfunar.
  • Gæðastarf, verklagsþróun og þátttaka í umbótaverkefnum
  • Þátttaka í fagþróun og innleiðing nýjunga í öldrunarþjónustu.
  • Skipulag og umsjón með verknámi nema í sjúkraþjálfun frá HÍ.

Klínísk starfsemi og teymisvinna

  • Almenn sjúkraþjálfun: skoðun, mat og meðferð skjólstæðinga endurhæfingardeildar og/eða íbúa á heimilunum.
  • Virk þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu og stefnumótun á heimilunum.
  • Samskipti og samráð við aðstandendur, lækna og aðra samstarfsaðila.

Hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari
  • Reynsla af endurhæfingu og/eða öldrunarþjónustu er kostur
  • Reynsla af stjórnun eða leiðtogahlutverki er æskileg
  • Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
  • Áhugi á þróun og uppbyggingu faglegs starfs
  • Jákvætt viðmót og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Góð íslenskukunnátta

Boðið er upp á:

  • Skemmtileg, fjölbreytt og krefjandi verkefni
  • Tækifæri til að hafa áhrif á þróun þjónustu og fagstarfs
  • Sterkt þverfaglegt samstarf
  • Lifandi vinnustað og skemmtilegt starfsumhverfi

Starf sjúkraþjálfunar er undir lækningasviði og yfirsjúkraþjálfari heyrir beint undir framkvæmdastjóra lækninga.

Umsóknarfrestur:

Umsóknarfrestur er til og með 14. júní 2026 og hvetjum við öll áhugasöm sem uppfylla ofangreindar hæfniskröfur til að sækja um starfið.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Félags sjúkraþjálfara og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV).

Umsókn fylgi náms- og starfsferilsskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi.

Öllum umsóknum verður svarað.

Frekari upplýsingar um starfið veitir

Ólafur Helgi Samúlesson, framkvæmdastjóri lækninga í netfang olafur@eir.is.

Um er að ræða 100% starf og er laust strax eða samkvæmt samkomulagi.

Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili hafa hlotið jafnlaunavottun í samræmi við kröfur staðalsins ÍST 85.

Eir, Hamrar og Skjól hjúkrunarheimili

About Eir, Hamrar og Skjól hjúkrunarheimili

Hjúkrunarheimilin Eir, Skjól og Hamrar eru sjálfseignarstofnanir sem starfa samkvæmt heilbrigðislögum til að vinna að málefnum aldraðra.

Industry
Healthcare & Social Services
Company Size
11-50 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
Unknown
Website
eir.is
Social Media