Krónan

Vöruflokkastjóri (Senior staða)

Krónan  •  Onsite  •  10 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Við leitum að framsæknum einstaklingi með reynslu í vöruflokkastýringu til að leiða spennandi vöruflokka hjá Krónunni. Vöruflokkastjórar Krónunnar eru ábyrgir fyrir því að þróa vöruframboð í takt við stefnu Krónunnar og tryggja að við séum alltaf skrefi á undan í því að mæta þörfum okkar fjölbreyttu viðskiptavina.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vöruflokkastýring á vel skilgreindum vöruflokkum
  • Samskipti við innlenda og erlenda birgja og aðra samstarfsaðila
  • Vöruval, verðlagning og greining á sölu og markaðstækifærum
  • Þátttaka í herferðum, kynningum og þróun á upplifun í verslunum og stafrænu umhverfi
  • Öflugt samstarf með kröftugu teymi Krónunnar sem brennur fyrir jákvæðri upplifun viðskiptavina og að hafa góð áhrif til framtíðar

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Hefur góða og haldbæra reynslu af innkaupum, vörustýringu og/eða vörumerkjastjórnun
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Hefur brennandi áhuga á dagvöru og þróun dagvörumarkaðar og fylgist með nýjungum
  • Hugsar í lausnum og er óhræddur við að taka frumkvæði
  • Er skipulagður og með næmt auga fyrir smáatriðum
  • Er teymisþenkjandi og frábær í samskiptum
  • Vill hafa áhrif og býr yfir verkefnagleði

Krónan býður upp á fjölbreyttan og metnaðarfullan vinnustað þar sem hægt er að hafa áhrif og leiða verkefni með sýnilegum árangri.

Hjá Krónunni starfa um 1200 manns, við eigum ánægðustu viðskiptavinina 9. árið í röð og erum með jafnlaunavottun VR.

Umsóknarfrestur er til og með 31. maí.

Sigurður Gunnar Markússon veitir nánari upplýsingar - smark@kronan.is

Krónan

About Krónan

We deliver the right products to you in the cheapest way possible.

Industry
Food & Beverage
Company Size
51-200 employees
Headquarters
Kópavogur, IS
Year Founded
2000
Website
kronan.is
Social Media