The City of Reykjavik

Vogaskóli - umsjónarkennari á miðstig

The City of Reykjavik  •  Onsite  •  3 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Vegna forfalla þá vantar umsjónarkennara á miðstig frá 1. ágúst - 31. desember 2026. Leitað er eftir metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi kennara sem er tilbúinn til að sinna kennslu á miðstigi.

Vogaskóli er heildstæður grunnskóli með um 410 nemendur og um 80 starfsmenn. Skólinn er staðsettur við Skeiðarvog í Vogahverfinu í Reykjavík. Þar er einnig sérdeild fyrir einhverfa nemendur. Unnið er eftir menntastefnu Reykjavíkur ,,Látum draumana rætast“, uppbyggingarstefnunni og verið er að innleiða aðferðir leiðsagnarnáms. Í skólanum ríkir jákvæður skólabragur sem einkennist af virðingu, samkennd, samvinnu, gleði og ábyrgð.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kennsla og umsjón nemendahóps á miðstigi.
  • Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við aðra starfsmenn skólans.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við fagfólk og foreldra.

Hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari
  • Menntun og hæfni til að kenna flestar greinar á miðstigi
  • Íslenskukunnátta á stigi B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum Self-assessment Grids (CEFR) - European Language Portfolio (ELP) (coe.int)
  • Sveigjanleiki og góð hæfni í samskiptum
  • Faglegur metnaður, frumkvæði og sjálfstæði
  • Góð almenn tölvukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Starfið er laust frá og með 1. ágúst 2026. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og launanefndar sveitarfélaga. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Snædís Valsdóttir, skólastjóri, snaedis.valsdottir@reykjavik.is sími: 411-7370 og 664-8351.

Vogaskóli við Skeiðarvog, 104 Reykjavík

The City of Reykjavik

About The City of Reykjavik

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
1,001-5,000 employees
Headquarters
Reykjavik, IS
Year Founded
1786
Social Media