
Vegna forfalla þá vantar kennara á unglingastig og í íslenskuver frá 1. ágúst - 31. desember 2026 og möguleiki á ráðningu út skólaárið. Leitað er eftir metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi kennara sem er tilbúinn til að sinna kennslu á unglingastigi og í íslenskuveri. Meðal kennslugreina á unglingastigi er danska og upplýsinga - og tæknimennt. Í íslenskuveri er það íslenskukennsla. Þar eru nemendur sem eru nýfluttir til Íslands og eru að hefja nám í íslensku. Þeir eru á aldrinum 10 - 16 ára.
Vogaskóli er heildstæður grunnskóli með um 430 nemendur og um 80 starfsmenn. Skólinn er staðsettur við Skeiðarvog í Vogahverfinu í Reykjavík. Þar er einnig sérdeild fyrir einhverfa nemendur. Unnið er eftir menntastefnu Reykjavíkur ,,Látum draumana rætast“, uppbyggingarstefnunni og verið er að innleiða aðferðir leiðsagnarnáms. Í skólanum ríkir jákvæður skólabragur sem einkennist af virðingu, samkennd, samvinnu, gleði og ábyrgð. Við skólann er íslenskuver borgarhlutans, fyrir nemendur í 5. - 10. bekk sem eru nýfluttir til Íslands og eru að hefja nám í íslensku.
Starfið er laust frá og með 1. ágúst 2026. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og launanefndar sveitarfélaga. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Snædís Valsdóttir, skólastjóri, snaedis.valsdottir@reykjavik.is sími: 411-7370.

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.