Við leitum að metnaðarfullum og hugmyndaríkum viðskiptastjóra hjá Samskipum innanlands. Viðkomandi þarf að hafa afburðar samskiptahæfni, jákvætt viðmót og brennandi áhuga á íslensku atvinnulífi. Erum við að leita að þér?
Helstu verkefni og ábyrgð
Menntunar- og hæfnikröfur
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum til þess að sækja um og er umsóknarfrestur til og með 07. júní n.k. Nánari upplýsingar veitir Óskar Jensson, sölustjóri, í netfangið oskar.jensson@samskip.com

Samskip eru alþjóðlegt flutningafyrirtæki sem býður flutningalausnir og tengda þjónustu á landi, sjó og í lofti með hagkvæmni og sjálfbærni að leiðarljósi.
Félagið er eitt af stærri flutningafyrirtækjum í Evrópu með um 668 milljónir evra í veltu á ári og starfsstöðvar í 24 löndum í Evrópu, Norður- og Suður-Ameríku, Asíu og Ástralíu. Starfsmenn eru um 1.500 talsins um allan heim. Höfuðstöðvar Samskipa eru í Hollandi og frá stofnun þess á Íslandi árið 1991 hefur það stækkað hratt, bæði vegna innri vaxtar og kaupa á öðrum félögum.
Meginstarfsemi félagsins byggir á gámaflutningum í Evrópu, flutningum á Norður-Atlantshafi, hitastýrðum flutningum um allan heim ásamt flutningsmiðlun og stórflutningum í Evrópu.