Sýn

Viðskiptastjóra lykilviðskiptavina

Sýn  •  Onsite  •  1 hour ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Vilt þú vera lykilráðgjafi nokkurra af stærstu fyrirtækjum landsins?

Við leitum að kraftmiklum, framsæknum og þjónustulunduðum einstaklingi sem hefur áhuga á viðskiptum, tækni og því að byggja upp sterk langtímasambönd. Í boði er krefjandi og ábyrgðarmikið framtíðarstarf í samheldnu teymi þar sem sjálfstæð, fagleg og árangursdrifin vinnubrögð skipta miklu máli.

Starfið felst meðal annars í að öðlast góðan skilning á rekstri, þörfum og markmiðum viðskiptavina, greina ný tækifæri og vinna með sérfræðingum Sýnar að lausnum sem skapa raunveruleg verðmæti. Viðskiptastjóri kynnir jafnframt nýjungar í vöruframboði og tryggir framúrskarandi þjónustu og eftirfylgni.

Lögð er rík áhersla á traust langtímasamband, framúrskarandi þjónustu og að styðja við verðmætasköpun viðskiptavina.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Viðskiptastýring og heildarábyrgð á völdum lykilviðskiptavinum
  • Uppbygging og þróun sterkra langtíma viðskiptasambanda
  • Greining á þörfum, tækifærum og framtíðaráformum viðskiptavina
  • Ráðgjöf og þróun lausna í samstarfi við sérfræðinga Sýnar
  • Gerð viðskipta- og vaxtaráætlana fyrir lykilviðskiptavini
  • Samningagerð og eftirfylgni
  • Tryggja framúrskarandi þjónustu og upplifun viðskiptavina
  • Greina ný tækifæri og skapa aukin verðmæti fyrir viðskiptavininn og Sýn

Hæfniskröfur

  • Reynsla af viðskiptastýringu, B2B-sölu, ráðgjöf eða sambærilegu starfi æskileg
  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Gott viðskiptavit og hæfni til að greina og þróa viðskiptatækifæri
  • Frumkvæði, metnaður og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð samninga- og samskiptahæfni
  • Markmiðadrifin og árangursmiðuð nálgun
  • Áhugi á tækni og þeim tækifærum sem hún skapar fyrir fyrirtæki

Það sem við höfum upp á að bjóða

  • Krefjandi og spennandi tæknilega vegferð
  • Metnaðarfullt og hæft teymi með skýra tæknilega stefnu
  • Líflegur og skemmtilegur vinnustaður með frábært mötuneyti

Fríðindi í starfi

  • Frábæra vinnufélaga
  • Framúrskarandi vinnuaðstöðu
  • Mötuneyti á heimsmælikvarða
  • Internet- og farsímaáskrift
  • Streymisveitu Sýnar og Viaplay
  • Árlegan heilsustyrk
  • Símtækjastyrk
  • Samgöngustyrk fyrir þá sem nýta sér vistvæna ferðamáta til og frá vinnu
  • Öflugt starfsmannafélag og frábæra vinnustaðamenningu

Hver erum við?

Sýn er leiðandi afl á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Hjá Sýn sameinum við það besta úr heimi tækni og afþreyingar og breytum hversdagsleikanum í upplifun.

Það er betra að vera með Sýn – hvort sem þú ert að horfa, hlusta, vafra eða vinna.

Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við trúum því að fyrirtækinu gangi best þegar starfsfólkið er upp á sitt BESTA.

Við hvetjum áhugasöm af öllum kynjum til að sækja um í gegnum ráðningarvefinn okkar. Umsóknarfrestur er til og með 7. september 2026 Umsóknir eru rýndar jafnóðum og þær berast.

Fyrir nánari upplýsingar má senda póst á mannaudur@syn.is

Sýn

About Sýn

Sýn er leiðandi afl á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Hjá Sýn sameinum við það besta úr heimi tækni og afþreyingar og breytum hversdagsleikanum í upplifun. Það er betra að vera með Sýn – hvort sem þú ert að horfa, hlusta, vafra eða vinna.

Industry
Telecommunications
Company Size
51-200 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
Unknown
Website
syn.is
Social Media