Akureyrarbær

Vinnuskóli Akureyrarbæjar: Flokkstjórar

Akureyrarbær  •  Onsite  •  17 days ago
Expired
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Fræðslu- og lýðheilsusvið Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða flokkstjóra í Vinnuskóla 14, 15, 16 og 17 ára sumarið 2026. Umsækjendur þurfa að vera 19 ára á árinu eða eldri.

Markmið starfsins er að veita unglingum hollt og uppbyggilegt sumarstarf með því að leiðbeina nemendum Vinnuskólans með markvissum hætti, veita fræðslu um náttúru og umhverfi og kenna notkun og meðferð algengra verkfæra sem notuð eru í starfi.

Helstu verkefni

  • Fegra og snyrta umhverfi Akureyrarbæjar.
  • Skipuleggur verkaskiptingu og framkvæmd verkefna innan síns hóps á tilgreindum starfsstöðum samkvæmt verkefnalista.
  • Byggja upp vinnuvirðingu hjá nemendum og vera fyrirmynd í starfi.
  • Kenna unglingum verklag, virðingu, stundvísi og aga.
  • Halda utan um tímaskráningu nemenda í Völu vinnuskóla.
  • Fræðsla og hópefli.

Menntunar- og/eða hæfniskröfur

  • Stúdentspróf eða sambærilegt nám er kostur.
  • Reynsla af vinnu með ungu fólki er kostur.
  • Áhugi á að vinna með ungu fólki.
  • Geta unnið sjálfstætt og tekið sjálfstæðar ákvarðanir.
  • Útsjónarsemi við framkvæmd verkefna.
  • Frumkvæði, stundvísi og samviskusemi.
  • Umsækjendur þurfa að vera 19 ára eða eldri.
  • Hreint sakavottorð.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Einingar-Iðju.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um störfin veitir Hafsteinn Þórðarson, verkefnastjóri Vinnuskólans, í síma 460-1244 eða á netfanginu hafsteinnth@akureyri.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í þjónustuveri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9.

Umsóknarfrestur er til og með 25. maí 2026

Akureyrarbær

About Akureyrarbær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown