Akureyrarbær

Vinnuskóli - 17 ára (2009)

Akureyrarbær  •  Onsite  •  2 months ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Opið er fyrir umsóknir í Vinnuskólann fyrir 17 ára unglinga.

Starfsemi Vinnuskólans

Í Vinnuskólanum starfa 14-17 ára unglingar. Vinna 17 ára unglinga fer fram hjá stofnunum og félögum Akureyrar við fjölbreytt störf.

Markmið með starfsemi Vinnuskóla Akureyrar er meðal annars að;

  • Fegra og snyrta umhverfi okkar og halda því óaðfinnanlegu.
  • Byggja upp vinnuvirðingu hjá nemendum og flokkstjórum.
  • Skapa trausta og sterka liðsheild í öllu starfi Vinnuskólans.
  • Bjóða upp á eftirsóknarvert starf í Vinnuskólanum með áherslu á þátttöku unglinga í þroskandi og skapandi starfi.
  • Veita unglingum Vinnuskólans fjölbreytileg tækifæri til að fræðast um bæinn og nágrenni hans.
  • Kenna unglingum verklag, virðingu, stundvísi og aga.
  • Viðhalda jákvæðri ímynd um Vinnuskólann og gera hana enn jákvæðari.
  • Veita fræðslu á ýmsum sviðum auk forvarna.

Sérstaða Vinnuskólans er að;

  • Ekki er skólaskylda í Vinnuskólanum.
  • Vinnuskólinn starfar samkvæmt samþykktum Akureyrarbæjar en ekki samkvæmt lögskipaðri námskrá.
  • Vinnuskólanum er skylt að taka við öllum nemendum sem skrá sig til sumarvinnu á aldrinum 14-17 ára og eiga lögheimili á Akureyri.

Allar nánari upplýsingar um Vinnuskólann má nálgast hér: https://www.akureyri.is/skola-og-fristundastarf/vinnuskolinn

Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 2026

Akureyrarbær

About Akureyrarbær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown