Isavia

Viltu umbreyta flóknum greiningum í hagnýtar ákvarðanir?

Isavia  •  Onsite  •  8 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Við leitum að sérfræðingi í aðgerðargreiningu sem hefur áhuga á gagnadrifinni ákvarðanatöku og vill taka þátt í framtíðarþróun flugvallarins.

Starfið er hjá Flugvallarþróun, þar sem unnið er að forhönnun stærri framkvæmdaverkefna á Keflavíkurflugvelli og að frumhugmyndum og þróunarverkefnum í samstarfi við innlenda og erlenda ráðgjafa og hönnuði.

Starfið felst í að styðja við stefnumótun, fjárfestingaákvarðanir og rekstrarþróun með greiningu gagna, spálíkönum og mati á áhrifum breytinga á innviði, ferla og þjónustu. Við leitum því að aðila með færni til að umbreyta gögnum í hagnýta þekkingu sem nýtist við ákvarðanatöku og framtíðarskipulag.

Helstu verkefni

  • Greina farþegaflæði, afkastagetu og nýtingu innviða.
  • Þróa og viðhalda greiningarlíkönum fyrir starfsemi flugvallarins.
  • Byggja spálíkön og sviðsmyndagreiningar fyrir umferð, þjónustu og fjárfestingar.
  • Styðja við undirbúning framtíðaráætlana og þróunar- og fjárfestingarverkefna.
  • Meta áhrif breytinga á innviðum, ferlum og þjónustu.
  • Kynna niðurstöður greininga og veita stjórnendum og hagaðilum ráðgjöf.
  • Vinna náið með rekstrar-, tækni- og þróunarteymum.

Menntunar- og hæfnikröfur

Við leitum að einstaklingi sem:

  • hefur háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem í verkfræði, stærðfræði, tölfræði, aðgerðargreiningu eða skyldum greinum
  • hefur reynslu af gagnagreiningu og líkanagerð
  • hefur góða tölfræðilega færni og hæfni til að vinna með stór gagnasöfn
  • á auðvelt með að miðla flóknum upplýsingum á skýran og hagnýtan hátt
  • sýnir frumkvæði, býr yfir góðri skipulagshæfni og getur unnið sjálfstætt
  • hefur góða íslensku- og enskukunnáttu, bæði í töluðu og rituðu máli.

Það er kostur ef þú hefur

  • þekkingu á greiningar- og skýrslugerðartólum, svo sem Power BI, Excel, SQL eða sambærilegum lausnum
  • reynslu af greiningum tengdum samgöngum, flugrekstri eða innviðauppbyggingu
  • reynslu af hermunarlíkönum eða afkastagetugreiningum
  • þekkingu á rekstri flugvalla
  • þekkingu eða reynslu af forritun og hagnýtingu gervigreindar við gagnagreiningu.

Starfsstöð Keflavíkurflugvöllur og Hafnafjörður

Við bjóðum góðan vinnustað

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Viltu vita meira um framtíð Keflavíkurflugvallar?

Á KEF+ getur þú skyggnst inn í framtíð Keflavíkurflugvallar og fylgst með þróun hans.

Umsókn og frekari upplýsingar

Umsóknarfrestur er til og með 4. desember 2026.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Brynjar Vatnsdal, forstöðumaður, Brynjar.Vatnsdal@isavia.is

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.

Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Isavia

About Isavia

We connect the world through Iceland ✈️

Isavia has the important role of handling the operation and development of infrastructure that lays the foundation for Iceland’s air transport, connections with the outside world and flights between continents.

Keflavik Airport is the largest gateway into Iceland. It is one of the most important single infrastructures of the tourism industry and plays an important role in creating a good quality of life and prosperity in Iceland.

To meet that responsibility, we have a united team and strong employees, who work together and with others in a constructive way.

Industry
Aviation & Aerospace
Company Size
201-500 employees
Headquarters
Hafnarfjörður, IS
Year Founded
2010
Website
isavia.is
Social Media