Lyfja

Við leitum að lyfsala í Lyfjuliðið

Lyfja  •  Onsite  •  8 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Við leitum að framsýnum og metnaðarfullum lyfjafræðingi í stöðu lyfsala í verslun okkar á Granda - breytingar og uppbygging framundan!

Sem lyfsali hjá Lyfju ert þú leiðtogi sem berð ábyrgð á að reka apótekið af fagmennsku og metnaði – bæði hvað varðar lyf, vörur í verslun og teymið þitt. Þú skapar faglega, þjónustumiðaða og markmiðadrifna vinnustaðamenningu og sérð til þess að viðskiptavinir upplifi persónulega þjónustu og góða ráðgjöf í takt við stefnu Lyfju og samkvæmt lögum og reglugerðum um lyfsöluleyfi.

Þetta er spennandi tækifæri fyrir manneskju með brennandi áhuga á heilbrigðisþjónustu sem vill hafa áhrif – á viðskiptavini, teymi og árangur Lyfju. Þú verður hluti af öflugum stjórnendahópi Lyfju sem hittist reglulega, styður við hvert annað og fær sérstaka leiðtogaþjálfun til að vaxa í hlutverki sínu.

Við leitum að lyfjafræðingi sem býr yfir:

  • Leiðtogahæfni og færni í að ná fólki með sér
  • Jákvæðni, drifkrafti og framúrskarandi samskiptahæfni
  • Áreiðanleika, metnaði og góðri skipulagsfærni
  • Áhuga á heilsu og vellíðan
  • Skilningi og áhuga á rekstrarumhverfi og verklagi apóteka
  • Að lágmarki tveggja ára starfsreynslu í apóteki
  • Háskólaprófi í lyfjafræði og gildu starfsleyfi

Nánari upplýsingar veita Þórbergur Egilsson, forstöðumaður verslanasviðs | the@lyfja.is eða Ásdís Eir Símonardóttir, forstöðumaður mannauðs og menningar | asdiseir@lyfja.is

Umsóknarfrestur er til og með 4. júní 2026. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Hvers vegna Lyfja?

Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að auka lífsgæði og efla heilsu. Við rekum 42 verslanir hringinn í kringum landið auk Lyfju Heyrnar og lyfjaskömmtunar. Hjá okkur starfar öflugur hópur heilbrigðismenntaðs og sérþjálfaðs starfsfólks sem styður við viðskiptavini í þeirra heilsueflingu, vinnur að vellíðan og tryggir lyfjaöryggi. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu og stöðuga nýsköpun.

Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Lyfja

About Lyfja

Lyfja er eitt elsta einkarekna apótek landsins en fyrirtækið hóf starfsemi sína með opnun Lyfju Lágmúla 1996. Í dag rekur Lyfja 45 apótek og útibú um allt land með það markmið að lengja líf og auka lífsgæði.

Industry
Retail & Ecommerce
Company Size
51-200 employees
Headquarters
, IS
Year Founded
1996
Website
lyfja.is
Social Media