Ertu í lyfjafræði og vilt fá raunverulega innsýn í starf lyfjafræðings?
Hjá Lyfju fá lyfjafræðinemar tækifæri til að læra af reyndu fagfólki, taka virkan þátt í daglegu starfi apóteks og byggja upp sterkan grunn fyrir framtíðina. Þú munt starfa í líflegu umhverfi þar sem fagleg þjónusta og velferð viðskiptavina er í forgrunni.
Hvað felst í starfinu?
Hverjum leitum við að?
Við leitum að lyfjafræðinemum sem:
Starfið:
Um sumarstarf er að ræða með möguleika á áframhaldandi hlutastarfi meðfram námi. Vinnutími er samkvæmt samkomulagi á opnunartíma verslunar.
Hvers vegna Lyfja?
Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að auka lífsgæði og efla heilsu. Við rekum 42 verslanir hringinn í kringum landið auk Lyfju Heyrnar og lyfjaskömmtunar. Hjá okkur starfar öflugur hópur heilbrigðismenntaðs og sérþjálfaðs starfsfólks sem styður við viðskiptavini í þeirra heilsueflingu, vinnur að vellíðan og tryggir lyfjaöryggi. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu og stöðuga nýsköpun.
Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs.Starfsfólk Lyfju nýtur góðra kjara á vörum og þjónustu hjá ELKO, Krónunni, Lyfju og N1, sem öll eru hluti af Festi hf.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Sólmundsdóttir, lyfjafræðingur á anna@lyfja.is og Edda Rós Skúladóttir, mannauðssérfræðingur á eddaskula@lyfja.is
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Lyfja er eitt elsta einkarekna apótek landsins en fyrirtækið hóf starfsemi sína með opnun Lyfju Lágmúla 1996. Í dag rekur Lyfja 45 apótek og útibú um allt land með það markmið að lengja líf og auka lífsgæði.