Orka náttúrunnar / ON Power

Við leitum að öflugum liðsfélaga í gufuveitu

Orka náttúrunnar / ON Power  •  Onsite  •  1 hour ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Við leitum að öflugum liðsfélaga í gufuveitu.

Við leitum að jákvæðum og drífandi liðsfélaga í gufuveitu Orku náttúrunnar.

Hjá okkur er enginn dagur alveg eins og hlutverkið hentar sérstaklega vel þeim einstaklingum sem hafa gaman af tæknilegum verkefnum, vilja vinna með höndunum og njóta sín í góðu samstarfi.

Hvað felst í starfinu?

  • Eftirlit, rekstur og viðhald búnaðar og kerfa
  • Fjölbreytt verkefni tengd gufuveitu
  • Bilanagreiningar
  • Samvinna með öflugu viðhalds- og verkstæðisteymi
  • Þátttaka í að bæta verklag, öryggi og áreiðanleika búnaðar

Hvað þarf til að ná árangri í starfinu?

Við leitum að einstakling sem hefur áhuga á að starfa í fjölbreyttu starfsumhverfi og vinnur verk sín af fagmennsku.

Á meðal annarra færni og eiginleika sem við leitum eftir eru:

  • Handlagni og lausnamiðað hugarfar
  • Rík öryggisvitund, hæfni til að meta áhættu og að vinna samkvæmt öryggis- og umhverfiskröfum
  • Áhugi á vélum, lögnum og tæknilegum búnaði
  • Áhugi á rekstri og viðhaldi
  • Sjálfstæði í starfi og hæfni til að taka þátt í góðu samstarfi
  • Vilji til að takast á við fjölbreytt verkefni innan og utan dyra við ólíkar aðstæður
  • Samskiptafærni, frumkvæði og útsjónarsemi
  • Iðnmenntun og/eða reynsla af vélbúnaði er kostur en áhugi og rétt viðhorf skipta okkur líka miklu máli.

Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningabréf þar sem umsækjendur gera grein fyrir hæfni sinni í starfið með vísan í hæfniskröfur.

Við tökum jafnréttið alvarlega!

Við viljum hafa sem fjölbreyttastan hóp starfsfólks og hvetjum því öll kyn til að sækja um starfið.

Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember 2026.

Nánari upplýsingar veitir Kristín Birna Fossdal, deildarstjóri Viðhalds og verkstæðis, Kristin.Birna.Fossdal@on.is.

Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Um Orku náttúrunnar

Orka náttúrunnar framleiðir rafmagn og heitt vatn í jarðhitavirkjunum á Hellisheiði og Nesjavöllum ásamt framleiðslu rafmagns með vatnsafli í Andakílsárvirkjun.

ON er stærsta jarðvarmafyrirtæki landsins og selur rafmagn til fyrirtækja og heimila um allt land en framleiðir heitt vatn til sölu og dreifingar hjá systurfélagi þess, Veitum.

ON er dótturfélag Orkuveitunnar sem er í eigu Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar.

ON framleiðir ekki bara umhverfisvæna orku fyrir heimili, fyrirtæki og farartæki heldur leggur fyrirtækið einnig ríka áherslu á rannsóknir, nýsköpun og sjálfbærni með það fyrir augum að tryggja komandi kynslóðum betri lífsgæði.

Hvernig vinnustaður er Orkuveitan?

Orka náttúrunnar / ON Power

About Orka náttúrunnar / ON Power

ON Power produces and sells geothermally generated electricity for the Icelandic market. As well as providing the capital area of Reykjavík with hot water.

The objective is to protect the interests of the country’s natural resources and the company’s customers, guided by the principle of sustainability. In so doing, the company supports innovation and the responsible utilisation of natural resources and promotes energy switching to a lower ecological footprint for the benefit of society as a whole.

//

Orka náttúrunnar framleiðir og selur rafmagn á ábyrgan og umhverfisvænan hátt til allra landsmanna á Íslandi.

Markmiðið er að gæta hagsmuna auðlinda landsins og viðskiptavina fyrirtækisins með sjálfbærni að leiðarljósi. Þar með styður fyrirtækið við nýsköpun, ábyrga nýtingu auðlindarinnar og flýtir fyrir orkuskiptum með minna vistspori, samfélaginu öllu til heilla.

Industry
Energy & Utilities
Company Size
51-200 employees
Headquarters
Reykjavik, IS
Year Founded
2014
Website
on.is
Social Media