Deloitte

Við erum að ráða í áhættu-og gæðadeild Deloitte

Deloitte  •  Kópavogur, IS (Onsite)  •  2 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Company Description

Deloitte er leiðandi þjónustuveitandi á sviði endurskoðunar og reikningsskila, upplýsingatækniráðgjafar, fjármálaráðgjafar, áhætturáðgjafar, skatta– og lögfræðiráðgjafar og tengdrar þjónustu. Alþjóðlegt net aðildarfélaga okkar og tengdra félaga spannar meira en 150 lönd og landsvæði (sameiginlega vísað til sem „félög Deloitte"). Hjá Deloitte starfa um 460.000 sérfræðingar sem stefna saman að því að veita ávallt framúrskarandi þjónustu þar af eru 320 á Íslandi.

Job Description

Áhættu- og gæðadeild Deloitte (QRS) leitar að jákvæðum, drífandi, sjálfstæðum og metnaðarfullum liðsfélaga.

Starfið felur í sér að taka þátt í þeim fjölbreyttu verkefnum sem eru unnin innan deildarinnar. Starfið hentar vel þeim sem hafa áhuga á gæðamálum, bestun ferla og aukinni skilvirkni. Ekki er gerð krafa um reynslu af gæðamálum, við kennum á starfið.

Starfið hentar vel fólki sem er nýkomið úr námi. 

Helstu verkefni meðal annarra: 

  • Þátttaka í innleiðingu á verkferlum (verklagsreglum og stöðlum )
  • Skráning í gæðakerfi og áhættumat
  • Eftirlit með reglufylgni og áhættumati  
  • Samþykki viðskiptavina og hlýtni við lög
  • Mikil samskipti við önnur svið innan Deloitte
  • Rýni ársreikninga og annarra gagna

Qualifications

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. viðskiptafræði og/eða önnur menntun
  • Mjög góð samskiptafærni og vilji til samvinnu og að stuðla að góðum starfsanda  
  • Fagmennska, sjálfstæð og vönduð vinnubrögð mikilvæg 
  • Áhugi á að læra nýja hluti í tengslum við gæða- og reglufylgni 
  • Gagnrýnin hugsun og greiningarhæfni mikilvæg 
  • Gott vald á íslensku og ensku, bæði töluðu og rituðu máli skilyrði 

Additional Information

Um teymið  

Áhættu- og gæðadeild starfar þvert á önnur svið Deloitte og er þeim innan handar með ýmis konar mál og fylgni við lög og reglur. Við vinnum saman sem ein heild og störfum mikið með áhættu- og gæðadeildum annarra Norðurlanda.  

Starfsþróun  

Það er mikilvægt að muna að á fyrsta degi kann enginn allt og við trúum því að það sé ávallt rými til að læra og bæta við sig þekkingu. Þú lærir mikið af þeim fjölbreyttu verkefnum sem unnin eru í teyminu og færð góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi.  

Að auki bjóðum við upp á:

  • Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat
  • Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf
  • Fyrirmyndar aðbúnað starfsfólks höfuðstöðvum fyrirtækisins á Dalvegi
  • Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum
  • Fjölbreytt áhugamál samstarfsfélaga þvert á félagið t.d. hlaupahópur, golfklúbbur, fótbolti í hádeginu, og leikjaherbergi svo eitthvað sé nefnt

Við hlökkum til að fá umsóknina þína. Nánari upplýsingar um starfið veita Pétur Hansson (pehansson@deloitte.is) og Helen Breiðfjörð (hbreidfjord@deloitte.is).

Tekið er á móti umsóknum (ferilskrá og kynningarbréfi) til og með 18. október 2026

Vilt þú hafa áhrif? Hjá Deloitte skiptir þitt framlag máli því saman, sem ein heild, vinnum við að því að hafa áhrif á viðskiptavini, samstarfsfélaga og samfélag. Þú færð tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum þvert á svið, starfsstöðvar og lönd, auka hæfni þína og færni og hafa góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi.

Deloitte

About Deloitte

Deloitte drives progress. Our firms around the world help clients become leaders wherever they choose to compete. Deloitte invests in outstanding people of diverse talents and backgrounds and empowers them to achieve more than they could elsewhere. Our work combines advice with action and integrity. We believe that when our clients and society are stronger, so are we.

Deloitte refers to one or more of Deloitte Touche Tohmatsu Limited (“DTTL”), its global network of member firms, and their related entities. DTTL (also referred to as “Deloitte Global”) and each of its member firms are legally separate and independent entities. DTTL does not provide services to clients. Please see www.deloitte.com/about to learn more.

The content on this page contains general information only, and none of Deloitte Touche Tohmatsu Limited, its member firms, or their related entities (collectively the “Deloitte Network”) is, by means of this publication, rendering professional advice or services. Before making any decision or taking any action that may affect your finances or your business, you should consult a qualified professional adviser. No entity in the Deloitte Network shall be responsible for any loss whatsoever sustained by any person who relies on content from this page.

Industry
Consulting & Advisory
Company Size
10,000+ employees
Headquarters
Worldwide, OO
Year Founded
1845
Social Media