NOVA Iceland

Verslunarstjóri

NOVA Iceland  •  Reykjavík, IS (Onsite)  •  3 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Nova, leitar að öflugum verslunarstjóra!

Verslunarstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri verslunarinnar, er fyrirmynd í sölu og þjónustu og skapar vinnustað þar sem fólki líður vel og þar sem viðskiptavinir fá framúrskarandi upplifun í anda Nova.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Leiðir daglegan rekstur verslunar og teymið á staðnum
  • Ber ábyrgð á að verslunin nái sölumarkmiðum og heldur uppi keppnisanda í teyminu
  • Þjálfar nýliða og teymið, veitir endurgjöf og hrós og tekur frammistöðusamtöl
  • Gerir vaktaplan og sér um daglega verkstjórn og stand-up fundi
  • Sér um ásýnd verslunar, birgðahald, uppgjör og önnur dagleg rekstrarverkefni
  • Tryggir hraða og persónulega þjónustu og leysir úr ábendingum viðskiptavina
  • Er tengiliður verslunarinnar við aðrar deildir Nova

Hæfniskröfur

  • Reynsla af sölu- og þjónustustörfum; reynsla af verkstjórn eða verslunarstjórnun er kostur
  • Leiðtogahæfileikar og að geta hvatt teymi til árangurs
  • Rík þjónustulund og framúrskarandi samskiptahæfni
  • Skipulögð, sjálfstæð og lausnamiðuð vinnubrögð ásamt frumkvæði og drifkrafti
  • Góð almenn tölvufærni og gott vald á íslensku og ensku
  • Áhugi á tækni og fjarskiptum er kostur
  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur

Um starfið

  • Starfshlutfall: 100%
  • Næsti yfirmaður: Rekstrarstjóri verslana

Við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um!

NOVA Iceland

About NOVA Iceland

Nova var stofnað í maí 2006 og í lok mars 2007 fékk Nova úthlutað 3G rekstrarleyfi. Þann 1. desember 2007 opnuðum við svo dyrnar að Stærsta skemmtistað í heimi. Nova á og rekur eigið 4G/4.5G farsíma- og netkerfi á landsvísu. Í febrúar 2019 hóf Nova prófanir á fyrsta 5G sendinum á Íslandi og 5.5.2020 fór Nova í loftið með 5G farsíma- og netþjónustu, fyrst allra farsímafyrirtækja á Íslandi. Árið 2016 bætti Nova ljósleiðaraþjónustu í vöruframboð sitt sem byggir á kerfi Ljósleiðarans ehf. Ljósleiðari hjá Nova styður 1000 Mb/s hraða, sem er mesti hraði í heimatengingum á Íslandi.

Við erum sérstaklega stolt og þakklát fyrir það að hafa fengið nafnbótina Fyrirtæki ársins 2023, hlotið Jafnlaunavottun 2020-2023, fyrir að vera Markaðsfyrirtæki ársins 2020 hjá ÍMARK og eiga ánægðustu viðskiptavinina á farsímamarkaði 17. árið í röð! Slíkum árangri væri ekki hægt að ná nema með besta liðinu en við leggjum okkur öll fram við það alla daga að skapa besta vinnustað í heimi!

Nova is a life-style oriented brand built around the first independent 3G mobile operator in Iceland. Nova has enjoyed an unparalleled success in the Icelandic telco market by capturing 34,5% of the mobile market share and in doing so established itself as a leading brand and the market challenger. The key to this success is the quality of the customer service Nova offers. Nova has been awarded the highest customers satisfaction score sixteen years in a row. Nova was the first telecommunication company to test the first 5G transmitter in Iceland and on 5 May 2020, Nova went live with 5G mobile phone and internet services, the first of all mobile phone companies in Iceland. Nova has 150 talented employees with various backgrounds and experiences. In 2016 Nova added fiber service to its selection of products, using a fiber system provided by Ljósleiðarinn ehf. We are especially proud, humble and grateful to have the opportunity to service you as a customer and our opportunities to grow and learn every day.

Industry
Telecommunications
Company Size
51-200 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
2007
Website
nova.is
Social Media