Mögnum

VERSLUNARSTJÓRI

Mögnum  •  Akureyri, IS (Onsite)  •  2 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Við leitum að leiðtoga til að leiða okkar frábæra hóp sem vinnur í verslun okkar á Akureyri.

Ef þú býrð yfir miklum leiðtogahæfileikum ert framsækinn, sinnir hlutum af fagmennsku og hefur gleðina í fyrirrúmi, þá erum við að leita að þér.

Starf verslunarstjóra er ábyrgðarmikið, skemmtilegt og fjölbreytt.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vera sýnilegur leiðtogi og leiða daglega starfsemi verslunar
  • Ábyrgð á rekstri og mannauði verslunar
  • Samskipti við viðskiptavini og birgja
  • Ábyrgð á vöruframsetningu og áfyllingu
  • Ábyrgð á birgðahaldi í verslun

Við leitum að einstaklingi með:

  • Stjórnunarreynslu og leiðtogahæfni
  • Reynslu af sölu- og þjónustustörfum
  • Ríka þjónustulund
  • Mjög góða samskiptahæfni
  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti

Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.

BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavinar í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.

Umsóknarfrestur er til og með   15. júní 2026

Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá á íslensku og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.

Sótt er um starfið á  www.mognum.is

Nánari upplýsingar veita

Telma Eiðsdóttir; telma@mognum.is

Sigríður Ólafsdóttir;  sigga@mognum.is

Mögnum

About Mögnum

Öflugt og framsækið þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðningum, ráðgjöf, fræðslu og markþjálfun fyrir fólk og vinnustaði sem vilja ná lengra.

Mögnum leggur áherslu á viðurkenndar nálganir og faglegar aðferðir sem skila viðskiptavinum virði og árangri. Mögnum var stofnað árið 2017 og er eina fyrirtækið sem býður upp á sambærilega þjónustu utan höfuðborgarsvæðisins.

Mögnum það sem á svæðinu býr svo við eflumst sem samfélag.

Industry
Consulting & Advisory
Company Size
1-10 employees
Headquarters
Akureyri, IS
Year Founded
2017
Website
mognum.is
Social Media