
Verkefnastjóri viðskiptaþróunar og stafrænna lausna
Vilt þú taka þátt í að móta framtíð stafrænnar fjármálaþjónustu?
Samband íslenskra sparisjóða (SÍSP) leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum aðila til að vinna að áframhaldandi þróun upplýsingatækni, stafrænna lausna og þjónustu sparisjóðanna.
Í starfinu vinnur þú náið með sparisjóðunum, þjónustuaðilum og sérfræðingum að því að þróa nýjar lausnir, bæta þjónustu og skapa aukið virði fyrir viðskiptavini.
Við bjóðum
Umsóknarfrestur er til og með 4. ágúst 2026
Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá á íslensku og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Sótt er um starfið á www.mognum.is
Nánari upplýsingar veita Sigríður Ólafsdóttir; sigga@mognum.is og Telma Eiðsdóttir; telma@mognum.is
Að Sambandi íslenskra sparisjóða standa starfandi sparisjóðir og sér sambandið um hagsmunagæslu þeirra og sameiginleg málefni.
Hlutverk sparisjóðanna er að standa vörð um hagsmuni landsmanna, treysta innviði samfélagsins og styðja við félags- og atvinnulíf í heimabyggð.
Þrír sparisjóðir starfa undir vörumerkinu Sparisjóðurinn og eru Sparisjóður Austurlands, Sparisjóður Þingeyinga og Smári sparisjóður.

Öflugt og framsækið þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðningum, ráðgjöf, fræðslu og markþjálfun fyrir fólk og vinnustaði sem vilja ná lengra.
Mögnum leggur áherslu á viðurkenndar nálganir og faglegar aðferðir sem skila viðskiptavinum virði og árangri. Mögnum var stofnað árið 2017 og er eina fyrirtækið sem býður upp á sambærilega þjónustu utan höfuðborgarsvæðisins.
Mögnum það sem á svæðinu býr svo við eflumst sem samfélag.