Mögnum

VERKEFNASTJÓRI SKRIFSTOFU ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐVAR

Mögnum  •  Onsite  •  4 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Rangárþing ytra auglýsir laust til umsóknar nýtt starf verkefnastjóra skrifstofu þjónustumiðstöðvar.

Þjónustumiðstöð Rangárþings ytra sinnir fjölbreyttum verkefnum sem snúa að rekstri og þjónustu sveitarfélagsins. Þar er lögð áhersla á góða þjónustu, skilvirka stjórnsýslu og öflugt samstarf.

Leitað er að skipulögðum og þjónustulunduðum einstaklingi sem hefur áhuga á fjölbreyttum verkefnum og vill taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu ört vaxandi sveitarfélags.

Helstu verkefni

  • Umsjón með málakerfi þjónustumiðstöðvar (ONE).
  • Þjónusta vegna reksturs vatnsveitu.
  • Reikningagerð fyrir þjónustumiðstöð og skipulags- og byggingaembætti.
  • Vinnsla almennra umsókna og afgreiðsla erinda.
  • Skipulag seyrulosunar og samskipti við íbúa og verktaka.
  • Umsjón með vinnuskóla sveitarfélagsins.
  • Undirbúningur funda í samstarfi við forstöðumann.
  • Móttaka og þjónusta við íbúa, símsvörun og samskipti.
  • Önnur tilfallandi verkefni.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi.
  • Iðn- eða tæknimenntun kostur.
  • Reynsla af verkefnastjórnun kostur.
  • Lipurð í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund.
  • Sjálfstæð, skipulögð og öguð vinnubrögð.
  • Góð tölvukunnátta og rík hæfni til að tileinka sér ný upplýsingakerfi.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.

Starfsstöð er í þjónustumiðstöð Rangárþings ytra að Eyjasandi 2 á Hellu

Næsti yfirmaður er forstöðumaður þjónustumiðstöðvar.

Umsóknarfrestur er til og með 6. ágúst 2026.

Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá á íslensku og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.

Sótt er um starfið á www.mognum.is

Nánari upplýsingar veita Sigríður Ólafsdóttir ; sigga@mognum.is og Telma Eiðsdóttir; telma@mognum.is

Mögnum

About Mögnum

Öflugt og framsækið þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðningum, ráðgjöf, fræðslu og markþjálfun fyrir fólk og vinnustaði sem vilja ná lengra.

Mögnum leggur áherslu á viðurkenndar nálganir og faglegar aðferðir sem skila viðskiptavinum virði og árangri. Mögnum var stofnað árið 2017 og er eina fyrirtækið sem býður upp á sambærilega þjónustu utan höfuðborgarsvæðisins.

Mögnum það sem á svæðinu býr svo við eflumst sem samfélag.

Industry
Consulting & Advisory
Company Size
1-10 employees
Headquarters
Akureyri, IS
Year Founded
2017
Website
mognum.is
Social Media