N1

Verkefnastjóri á skrifstofu framkvæmdastjóra

N1  •  Onsite  •  14 days ago
Expired
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

N1 leitar að öflugum verkefnastjóra á skrifstofu framkvæmdastjóra þar sem meginhlutverk er að styðja framkvæmdastjóra og stjórnendur í daglegum rekstri, samhæfa verkefni og tryggja eftirfylgni lykilmála fyrirtækisins.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Styðja framkvæmdastjóra í daglegum rekstri félagsins og eftirfylgni verkefna
  • Halda utan um framvindu lykilverkefna, tímaáætlanir og stöðuyfirlit
  • Samræma verkefni, fundi og upplýsingaflæði milli sviða
  • Undirbúa kynningar, minnisblöð og annað efni fyrir stjórnendur og framkvæmdastjórn
  • Fylgja eftir ákvörðunum og aðgerðum framkvæmdastjórnar
  • Taka þátt í umbótum á verkferlum og aukinni skilvirkni í rekstri

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af verkefnastjórnun, rekstrarstuðningi eða sambærilegum störfum
  • Framúrskarandi skipulags- og eftirfylgnifærni
  • Góð samskipta- og ritfærni
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og halda utan um mörg verkefni samtímis
  • Góð kunnátta í Excel, PowerPoint og öðrum skrifstofukerfum

Leitum að einstaklingi sem býr yfir

  • Frumkvæði og ábyrgðarkennd
  • Fagmennsku og ríkri trúnaðarskyldu
  • Nákvæmum og skipulögðum vinnubrögðum
  • Sterkri samvinnu- og samskiptahæfni
  • Lausnamiðaðri og jákvæðri nálgun

Við bjóðum upp á öflugt starfsumhverfi, fjölbreytt og krefjandi verkefni, góð starfskjör og fríðindi, svo sem heilsueflandi úrræði og sérstök kjör hjá N1, ELKO, Krónunni og Lyfju.

Ef þú telur reynslu þína og hæfni nýtast vel í hlutverkinu og hefur áhuga á að verða hluti af öflugu teymi hjá N1, hvetjum við þig til að sækja um fyrir 24. maí 2026.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf.

N1 - hluti af deginum um land allt!

Hjá okkur mætast ferðalög, daglegt amstur og allt það sem þarf að redda á leiðinni. Stundum er það einfaldlega að stoppa og fylla á. Stundum eru það dekk, bílaþvottur, bita, kaffi eða eitthvað praktískt sem bjargar deginum. Og stundum er það heildarlausn fyrir fyrirtæki sem þarf að halda hjólunum gangandi – dag eftir dag.

Við rekum yfir 150 þjónustustaði um allt land og erum til staðar þar sem fólk býr, vinnur og ferðast. Ekki bara á höfuðborgarsvæðinu, heldur víðsvegar um landið – þar sem þjónusta skiptir oft mestu máli.

Við erum hluti af innviðum landsins og því fylgir ábyrgð. Við vinnum að því að halda Íslandi á hreyfingu og létta daginn, á sama tíma og við tökum markviss skref í átt að minni umhverfisáhrifum og ábyrgari virðiskeðju. Það felur í sér skýr markmið, betri yfirsýn og lausnir sem virka í daglegu lífi – fyrir bæði fólk og fyrirtæki.

Hjá N1 starfa um 630 manns í fjölbreyttum störfum um allt land.

Velferð starfsfólks er í forgangi og við bjóðum upp á heilsueflandi úrræði í gegnum velferðarpakka félagsins. Þá nýtur starfsfólk einnig góðra kjara á vörum og þjónustu hjá N1, ELKO, Krónunni og Lyfju.

N1

About N1

N1 er orku- og þjónustufyrirtæki fyrir fólk, farartæki og fyrirtæki. N1 leggur viðskiptavinum lið með þéttu neti þjónustustöðva og verslana þar sem boðið er upp á fjölbreyttar veitingar og markvisst vöruúrval auk bíla- og rekstrarvara. Þar að auk býður N1 upp á hjólbarða- og smurþjónustu, sem og bílaviðgerðir víða um land.

Industry
Retail & Ecommerce
Company Size
201-500 employees
Headquarters
Kópavogur, IS
Year Founded
Unknown
Website
n1.is
Social Media