Advania Ísland

Verkefnastjóri rekstrarlausna

Advania Ísland  •  Iceland (Onsite)  •  1 day ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Við leitum að öflugum verkefnastjóra til að ganga til liðs við samheldið teymi verkefnastjóra hjá rekstrarlausnum Advania. Hlutverkið felur í sér stýringu fjölbreyttra verkefna fyrir viðskiptavini okkar með áherslu á hýsingu og rekstur.

Við leggjum ríka áherslu á samvinnu, fagmennsku og stöðugar umbætur. Starfið felur í sér náið samstarf með sérfræðingum og viðskiptavinum við að tryggja árangursríka framkvæmd verkefna og framúrskarandi upplifun viðskiptavina.

Helstu verkefni

  • Stýring upplýsingatækni-, hýsingar- og rekstrarverkefna frá upphafi til enda
  • Áætlunargerð, eftirfylgni og samskipti við viðskiptavini og hagaðila
  • Tryggja skilvirka samvinnu verkefnateyma og að verkefni gangi samkvæmt áætlun
  • Greining og stjórnun áhættu, breytinga og forgangsröðunar
  • Virk þátttaka í umbótum og verklagi

Við leitum að einstaklingi sem hefur

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Reynslu af verkefnastýringu á sviði upplýsingatækni
  • Getu til að halda utan um mörg verkefni samhliða og ná árangri
  • Framúrskarandi samskipta- og skipulagshæfni
  • Frumkvæði, drifkraft og lausnamiðað hugarfar
  • Sterka þjónustulund og áhuga á að byggja upp góð tengsl við viðskiptavini
  • Vottun í verkefnastjórnun er kostur

Hjá okkur færð þú

  • Fjölbreytt og krefjandi verkefni hjá leiðandi upplýsingatæknifyrirtæki
  • Frábært starfsumhverfi þar sem skoðanir og hugmyndir starfsfólks skipta máli
  • Tækifæri til að hafa áhrif á þróun þjónustu og verklags
  • Öflugt teymi verkefnastjóra sem styður hvert annað og deilir þekkingu
  • Sveigjanlegt vinnuumhverfi og gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs
  • Stuðning við starfsþróun, símenntun og faglegan vöxt
  • Samkeppnishæf kjör

Vinnustaðurinn Advania

Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur. Áherslan á að vera einn besti vinnustaður landsins kemur best fram í vinnustaðagreiningum sem hafa sýnt mikla ánægju starfsfólks um árabil. Advania hefur markað sér fjarvinnustefnu og stendur starfsfólki til boða að vinna að hluta til í fjarvinnu. Í höfuðstöðvum okkar í Guðrúnartúni er svo boðið upp á mat í glæsilegu mötuneyti, góða líkamsræktaraðstöðu og leikherbergi - bæði fyrir starfsfólk og stuttfætta gesti.

Advania hefur markað sér bæði jafnréttisstefnu og sjálfbærnistefnu. Við leggjum mikla áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti og hlaut Advania jafnlaunavottun árið 2018 fyrst íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja. Einnig fylgjumst við grannt með okkar kolefnisspori, aðfangakeðju og áhrifum okkar á samfélagið og setjum okkur háleit markmið um úrbætur.

Ef þú leitar að spennandi verkefnum, góðu vinnuumhverfi og hressu samstarfsfólki, þá finnurðu það hjá okkur. Gildi Advania eru snerpa, ástríða og hæfni

Ferli ráðninga

  1. Tekið á móti umsóknum til 20. ágúst 2026
  2. Yfirferð umsókna
  3. Boðað í fyrstu viðtöl
  4. Boðað í seinni viðtöl
  5. Verkefni eða próf lögð fyrir ef við á
  6. Öflun umsagna / meðmæla
  7. Ákvörðun um ráðningu
  8. Öllum umsóknum svarað

Starfsfólk mannauðssviðs ásamt deildarstjóra, forstöðumanni og framkvæmdastjóra þess sviðs sem starfið tilheyrir hafa aðgang að þeim umsóknum sem berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Nína Þrastardóttir, deildarstjóri Project Management, nina.thrastardottir@advania.is / 4409000.

Advania Ísland

About Advania Ísland

Markmið okkar er að stuðla að jákvæðum áhrifum á samfélagið með snjallri notkun upplýsingartækninnar.

Industry
IT & Software
Company Size
501-1,000 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
1939
Social Media