Mögnum

VERKEFNASTJÓRI FRÆÐSLUMÁLA

Mögnum  •  Onsite  •  19 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Byggðasamlag Odda bs. auglýsir eftir öflugum og metnaðarfullum verkefnastjóra fræðslumála í 100% starf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Leiða faglega og rekstrarlega stjórnun skólamála
  • Umsjón með fjárhagsáætlunum, mannauðsmálum og rekstri skólanna í samstarfi við hlutaðeigandi
  • Eftirlit og yfirsýn í skólamálum, m.a. með mótun verkferla og fjárhagslegu eftirliti
  • Framkvæmd, eftirlit og yfirsýn fræðslumála, m.a. framkvæmd samninga, laga og reglugerða um leik- og grunnskóla
  • Tryggja virkt samstarf við ríkisstofnanir, önnur sveitarfélög og helstu hagsmunaaðila
  • Undirbúningur mála til umfjöllunar á fundum byggðasamlagsins og víðar
  • Þátttaka í starfi, fundum og teymisvinnu er tengjast málefnum barna, foreldra og skóla
  • Samhæfing og stuðningur við faglegt starf leik- og grunnskóla
  • Vinna markvisst að gæðastjórnun og starfsþróun í skólum Odda bs.
  • Styðja við innleiðingu farsældarlaganna í skólunum
  • Önnur verkefni í samráði við framkvæmdastjóra og stjórn

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Þekking og reynsla í opinberri stjórnsýslu er æskileg
  • Reynsla af stjórnun, stefnumótun og mannauðsmálum er æskileg.
  • Reynsla og þekking á málefnum sveitarfélaga og starfsvæðinu er kostur
  • Greiningarfærni og reynsla af gerð fjárhagsáætlana er skilyrði
  • Góð fagþekking, m.a. á lögum og reglum um málefni barna og skóla er kostur
  • Frumkvæði og hæfni til að leiða verkefni og breytingar
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð tölvukunnátta, m.a. færni í vinnslu gagna og notkun upplýsingakerfa
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Góð málakunnátta, a.m.k. í íslensku og ensku

Byggðasamlag Odda bs. er byggðasamlag sem sér um rekstur leik- og grunnskóla Ásahrepps og Rangárþings ytra. Um er að ræða Leikskólann Laugalandi, Leikskólann Heklukot, Grunnskólann Hellu og Laugalandsskóla. Fjöldi nemenda í heildina eru 400 talsins og starfsmenn rúmlega 140. Sveitarfélögin líta á hvern skóla sem sjálfstæða einingu en eru með sameiginlega skólastefnu sem nær til beggja skólastiga. En einkunarorð stefnunar eru Göngum glöð til verka.

Mikil uppbygging er á svæðinu en hafin er markviss uppbygging á endurbótum leik- og grunnskóla á Laugalandi. Nýlega var 2. áfangi nýbyggingu Grunnskólans á Hellu tekin í notkun þar sem öll vinnuaðstaða er til fyrirmyndar. Verið er að byggja nýjan 8 deilda leikskóla á Hellu og verður nýi leikskólinn undir sama þaki og grunn- og tónlistarskólinn.

Umsóknarfrestur er til og með 25. maí 2026

Sótt er um starfið á www.mognum.is

Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.

Nánari upplýsingar veita:

Sigríður Ólafsdóttir; sigga@mognum.is

Telma Eiðsdóttir; telma@mognum.is

Mögnum

About Mögnum

Öflugt og framsækið þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðningum, ráðgjöf, fræðslu og markþjálfun fyrir fólk og vinnustaði sem vilja ná lengra.

Mögnum leggur áherslu á viðurkenndar nálganir og faglegar aðferðir sem skila viðskiptavinum virði og árangri. Mögnum var stofnað árið 2017 og er eina fyrirtækið sem býður upp á sambærilega þjónustu utan höfuðborgarsvæðisins.

Mögnum það sem á svæðinu býr svo við eflumst sem samfélag.

Industry
Consulting & Advisory
Company Size
1-10 employees
Headquarters
Akureyri, IS
Year Founded
2017
Website
mognum.is
Social Media