Festi hf.

Verkefnastjóri í framkvæmdadeild

Festi hf.  •  Onsite  •  2 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Viltu stýra fjölbreyttum framkvæmdaverkefnum um allt land?

Yrkir leitar að öflugum verkefnastjóra til að leiða nýframkvæmdir, breytingar og viðhaldsverkefni fyrir félög Festi samstæðunnar. Við leitum að metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi með reynslu af stjórnun og eftirfylgni framkvæmda- og viðhaldsverkefna.

Starfið felst m.a. í að halda utan um og fylgja eftir stærri framkvæmdaverkefnum sem og viðhalds- og breytingaverkefnum á vegum félaga innan samstæðu Festi hf.

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af verkefnastjórn, ástandsgreiningu, gerð verk- og kostnaðaráætlana.
  • Reynsla af skipulagningu, umsjón og eftirliti með verklegum framkvæmdum er nauðsynleg.
  • Verkfræði-, tæknifræði- eða byggingafræðimenntun æskileg.
  • Sjálfstæð, skipulögð og öguð vinnubrögð.
  • Góð samskiptahæfni, þjónustulund og geta unnið í teymi.
  • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli.
  • Góð almenn tölvukunnátta.

Helstu þættir starfsins:

  • Umsjón, eftirlit og eftirfylgni með nýframkvæmdum sem og verkefnum sem snúa að breytingum á fasteignum og rekstrareiningum félaga samstæðunnar.
  • Gerð kostnaðar-, verk-, og framkvæmdaáætlana og uppgjör verkefna.
  • Aðkoma að undirbúningi og áætlanagerð fyrir viðhaldsverkefni.
  • Innkaup og fjárfesting á rekstrartengdum búnaði fyrir rekstrarfélög samstæðunnar.
  • Eftirlit og umsjón með framkvæmdum, eftirlit með að þau séu unnin í samræmi við samþykkt gögn, svo sem hönnunargögn, kostnaðar- og tímaáætlanir.

Umsóknarfrestur er til og með 10. nóvember 2026.

Nánari upplýsingar veitir Ívar Örn Þrastarson, ivarth@yrkir.is og Elvar Magnússon, elvar@yrkir.is.

Í framkvæmdadeild Yrkis starfa í dag 7 starfsmenn sem halda utan um framkvæmdir og viðhald á fasteignum og rekstrareiningum félaga innan Festi hf. Við hjá Yrki veitum starfsfólki sveigjanleika í starfi og leggjum áherslu á jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Yrkir eignir ehf. er fasteignafélag í eigu Festi hf. Yrkir heldur utan um rekstur og þróun allra fasteigna í eigu samstæðunnar. Jafnframt heldur Yrkir utan um nýframkvæmdir og viðhald á fasteignum og rekstrareiningum innan samstæðunnar ásamt öryggismálum.

Innan Festi samstæðunnar eru ásamt Yrki, Bakkinn vöruhótel ehf., Elko ehf., Krónan ehf., N1 ehf. og Lyfja ehf.

Festi starfrækir vottað jafnlaunakerfi og hefur skuldbundið sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Starfsfólki er veittur sveigjanleiki í starfi og lögð er áhersla á jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Velferð starfsfólks er í fyrirrúmi og er ýmiss konar heilsueflandi þjónusta í boði í Velferðarpakka félagsins. Starfsfólk fær góð kjör á vörum og þjónustu hjá ELKO, Krónunni, N1 og Lyfju.

Festi hf.

About Festi hf.

Hlutverk Festi er að stýra fjárfestingum, styðja við verðmætasköpun og skapa ný tækifæri.

Festi á og rekur fyrirtæki sem eru leiðandi á hvert á sínum markaði; matvöru-, raftækja-, eldsneytis-, raforkusölu-, lyfsölu og þjónustustöðvamarkaði. Fasteigna- og vöruhúsarekstur og kaup og sala verðbréfa er einnig hluti af starfsemi samstæðunnar.

Móðurfélagið Festi á dótturfélögin Krónuna sem rekur samnefndar matvöruverslanir, N1 sem rekur þjónustustöðvar eldsneytis- og rafmagnssölu og ýmsa þjónustu tengda smur- og bifreiðaþjónustu, ELKO sem er stærsta raftækjaverslun landsins, Lyfja sem er ein stærsta keðja apóteka á landinu og rekur 45 staðsetningar um land allt, Yrkir sem á og rekur fasteignir samstæðunnar og Bakkann vöruhótel sem sérhæfir sig í vöruhúsaþjónustu og dreifingu.

Festi's mission is to drive investments, support value creation and create new opportunities.

Festi owns and operates companies that are leaders in each of their markets; food, electronics, pharmaceuticals, fuel, electricity sales and service stations. Real estate and warehouse operations along with the purchase and sale of securities are also part of the Group's activities.

The parent company Festi owns the subsidiaries Krónan which operates supermarkets, N1 which operates fuel and electricity sales service stations and various services related to lubrication and automotive services, ELKO which is the largest electronics store in Iceland, Lyfja which is the largest pharmacy chain in Iceland, Yrkir eignir, which owns and operates the Group's real estate and Bakkann vöruhótel, which specialises in warehouse services and distribution.

Industry
Retail & Ecommerce
Company Size
51-200 employees
Headquarters
Kópavogur, IS
Year Founded
Unknown
Website
festi.is
Social Media