Advania Ísland

Verkefnastjóri í Business Central

Advania Ísland  •  Onsite  •  11 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Langar þig að vinna í öflugum hópi með mörgum af helstu fyrirtækjum landsins? Vegna aukinna verkefna leitum við að kraftmikilli, úrræðagóðri og metnaðarfullri manneskju í starf verkefnastjóra í Business Central ráðgjöf. Við bjóðum uppá spennandi og gott vinnuumhverfi með fjölbreyttum verkefnum og tækifærum.

Starfssvið

Verkefnastjóri sér um skipulagningu og stjórnun verkefna hjá lykilviðskiptavinum, miðlar stöðu og framvindu þeirra, ásamt því að annast gerð greininga og verkáætlana. Verkefnastjóri sinnir einnig samskiptum við stóra viðskiptavini, tryggir afhendingu afurða og gæði þeirra.

Verkefnastjóri sér einnig um samskipti við birgja og aðra samstarfsaðila sem tengjast verkefninu.

Sem verkefnastjóri í Business Central ráðgjöf berð þú ábyrgð á skipulagningu og stjórnun innleiðingar- og umbótaverkefna í nánu samstarfi við viðskiptavini og ráðgjafateymi. Í starfinu felst m.a. að:

  • Stýra verkefnum tengdum innleiðingu og þróun á Microsoft Dynamics 365 Business Central
  • Annast þarfagreiningu, gerð verk- og tímaáætlana og eftirfylgni verkefna
  • Miðla stöðu og framvindu verkefna til viðskiptavina og innri hagaðila
  • Tryggja afhendingu lausna á tilsettum tíma og með tilskildum gæðum
  • Annast samskipti við viðskiptavini, ráðgjafa, birgja og aðra samstarfsaðila
  • Styðja við fagleg vinnubrögð og stöðuga bætingu í verkefnastjórnun

Business Central ráðgjöf

Innan viðskiptalausna starfa reynslumiklir sérfræðingar sem vinna að innleiðingum og þróun Business Central lausna fyrir íslensk fyrirtæki í fjölbreyttum atvinnugreinum. Við veitum framúrskarandi þjónustu sem byggir á djúpri þekkingu á viðskiptaferlum, fjármálum og rekstri, og nýtum Business Central til að styðja við stafræna umbreytingu viðskiptavina.

Verkefnastjóri starfar í þverfaglegu teymi Business Central ráðgjafa.

Starfið gæti hentað þér ef þú:

  • Hefur háskólamenntun á sviði tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði, verkefnastjórnunar, viðskiptafræði eða aðra menntun sem nýtist í starfi
  • Hefur reynslu af verkefnastýringu, helst í hugbúnaðar- eða ráðgjafaumhverfi
  • Býrð yfir leiðtogafærni og sterkri teymishugsun
  • Ert skipulögð/skipulagður og fær í forgangsröðun verkefna
  • Hefur góða samskiptafærni og nærð vel til ólíkra hagaðila
  • Ert drífandi, lausnamiðuð/lausnamiðaður og árangursmiðuð/miðaður
  • Hefur reynslu af Business Central eða öðrum ERP-kerfum

Kostur er ef þú:

  • Hefur reynslu af verkefnastýringu í innleiðingu viðskiptakerfa
  • Hefur meistaragráðu í Verkefnastjórnun eða IP

Vinnustaðurinn Advania

Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur. Áherslan á að vera einn besti vinnustaður landsins kemur best fram í vinnustaðagreiningum sem hafa sýnt mikla ánægju starfsfólks um árabil. Advania hefur markað sér fjarvinnustefnu og stendur starfsfólki til boða að vinna að hluta til í fjarvinnu. Í höfuðstöðvum okkar í Guðrúnartúni er svo boðið upp á mat í glæsilegu mötuneyti, góða líkamsræktaraðstöðu og leikherbergi - bæði fyrir starfsfólk og stuttfætta gesti.

Advania hefur markað sér bæði jafnréttisstefnu og sjálfbærnistefnu. Við leggjum mikla áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti og hlaut Advania jafnlaunavottun árið 2018 fyrst íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja. Einnig fylgjumst við grannt með okkar kolefnisspori, aðfangakeðju og áhrifum okkar á samfélagið og setjum okkur háleit markmið um úrbætur.

Ef þú leitar að spennandi verkefnum, góðu vinnuumhverfi og hressu samstarfsfólki, þá finnurðu það hjá okkur. Gildi Advania eru snerpa, ástríða og hæfni

Ferli ráðninga

  1. Tekið á móti umsóknum til 31. maí 2026
  2. Yfirferð umsókna
  3. Boðað í fyrstu viðtöl
  4. Boðað í seinni viðtöl
  5. Verkefni eða próf lögð fyrir ef við á
  6. Öflun umsagna / meðmæla
  7. Ákvörðun um ráðningu
  8. Öllum umsóknum svarað

Starfsfólk mannauðssviðs ásamt deildarstjóra, forstöðumanni og framkvæmdastjóra þess sviðs sem starfið tilheyrir hafa aðgang að þeim umsóknum sem berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Jóhannsdóttir, deildarstjóri Business Central ráðgjöf, gudrun.johannsdottir@advania.is / 4409000

Advania Ísland

About Advania Ísland

Markmið okkar er að stuðla að jákvæðum áhrifum á samfélagið með snjallri notkun upplýsingartækninnar.

Industry
IT & Software
Company Size
501-1,000 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
1939
Social Media