Akureyrarbær

Velferðarsvið: Starfsfólk í þjónustuúrræði fyrir fötluð börn

Akureyrarbær  •  Onsite  •  2 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Velferðarsvið óskar eftir að ráða starfsfólk í þjónustuúrræði fyrir fötluð börn. Um er að ræða 35 -100% sveigjanlegt starfshlutfall í tímabundnum störfum í vaktavinnu til eins árs með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst.

Markmiðið er að veita börnum umönnun og búsetu í samræmi við þarfir þeirra hverju sinni. Jafnframt að veita heildstæða þjónustu og stuðning og stuðla að góðum tengslum við forsjáraðila og því markmiði að búa barni/börnum öruggt og barnvænt heimili með hliðsjón af einstaklingsbundnum þörfum, þroska, getu og aldri þess/þeirra.

Helstu verkefni eru:

  • Umönnun fatlaðra barna og stuðla að þroska þeirra og vexti í samræmi við getu og þarfir.
  • Efla sjálfræði og frumkvæði og sýna stuðning og vináttu.
  • Starfið felur í sér öguð og skipulögð vinnubrögð, framkvæmd þjónustuáætlana, dagsskipulag og vinnu undir handleiðslu fagmanna.
  • Almennt heimilishald.
  • Samskipti, í samráði við notendur, við ýmsa þjónustuaðila og aðstandendur.
  • Tileinka sér og vinna eftir ríkjandi hugmyndafræði.
  • Önnur verkefni sem starfsmanni eru falin af yfirmanni.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af starfi með fötluðum er æskileg.
  • Lipurð, jákvæðni, kurteisi og trúnaður í samskiptum við notendur, samstarfsfólk og aðra er tengjast starfinu.
  • Vandvirkni, samviskusemi og þagmælska.
  • Sveigjanleiki vegna mismunandi þarfa þeirra einstaklinga sem verið er að þjónusta og styðja.
  • Frumkvæði, samvinnuhæfni og sjálfstæði í starfi.
  • Jákvætt viðhorf til fólks með fötlun og réttinda þeirra.
  • Áhugi á og vilji til að tileinka sér nýja þekkingu og leggja sitt af mörkum til að bæta þjónustuna og auka lífsgæði þeirra einstaklinga sem verið er að styðja.
  • Grunnþekking á uppeldi og umönnun barna og geta tileinkað sér leiðbeiningar sérfræðinga á sviði geð- og þroskaraskana.
  • Reynsla af starfi við persónulega aðstoð og starfi með börnum er kostur og þarf að koma fram í umsókn.
  • Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
  • Gott líkamlegt og andlegt atgervi.
  • Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Einingar-Iðju.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sísý Malmquist, forstöðumaður í sérstökum úrræðum fatlaðra barna, sími 670-8570, netfang: sisymall@akureyri.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í Þjónustuveri Akureyrarbæjar Geislagötu 9.

Umsóknarfrestur er til og með 10. nóvember 2026.

Akureyrarbær

About Akureyrarbær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown