Akureyrarbær

Velferðarsvið: Starfsfólk í búsetuþjónustu í Kjalarsíðu

Akureyrarbær  •  Onsite  •  2 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Velferðarsvið Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða starfsfólk á heimili fyrir fatlað fólk. Annars vegar er um að ræða ótímabundið starf í 50% starfshlutfalli og hins vegar störf í tímavinnu. Unnið er á dag-, kvöld-, nætur- og helgarvöktum.

Velferðarsvið veitir fjölbreytta þjónustu sem styður við sjálfstæða búsetu fólks og skapar því aðstæður til að lifa sem eðlilegustu lífi, bæði heima og utan heimilis.

Unnið er eftir hugmyndafræði valdeflingar og Þjónandi leiðsagnar eða annarri hugmyndafræði sem mætir þörfum notenda og ákveðin er af velferðarsviði og gert er ráð fyrir að starfsfólk tileinki sér þau vinnubrögð.

Helstu verkefni eru:

  • Veita íbúum aðstoð við ýmsar athafnir daglegs lífs og aðstoða þá við að njóta menningar-, tómstunda og félagslífs.
  • Efla sjálfræði, frumkvæði, virkni og þátttöku í daglegu lífi.
  • Vinna samkvæmt þjónustuáætlunum, dagskipulagi og undir handleiðslu fagfólks.
  • Sinna almennum heimilisstörfum.

Hæfniskröfur:

  • Nýfengin reynsla af starfi með fötluðum er æskileg. Reynslu skal tilgreina í umsókn.
  • Lipurð, jákvæðni, kurteisi og trúnaður í samskiptum við notendur, samstarfsfólk og aðra er tengjast starfinu.
  • Mikilvægir eiginleikar eru sveigjanleiki, samviskusemi, lipurð og jákvætt viðhorf til fólks og vinnu sinnar.
  • Færni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, samstarfshæfni og sjálfstæði í starfi.
  • Þekking á hugmyndafræðinni Þjónandi leiðsögn og Valdeflingu er kostur.
  • Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
  • Almenn tölvukunnátta.
  • Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri og hafa bílpróf.
  • Gott líkamlegt og andlegt atgervi.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Einingar - Iðju.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Guðmundsdóttir í síma 860-2085, netfang: gudrung@akureyri.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í Þjónustuveri Akureyrarbæjar Geislagötu 9.

Umsóknarfrestur er til og með 3. desember 2026.

Akureyrarbær

About Akureyrarbær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown