Ert þú með jákvætt viðmót, faglegan metnað og vinnur sjálfstætt?
Sóltún hjúkrunarheimili leitar að öflugum vaktstjóra í fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf, þar sem saman fara stjórnunarhlutverk og umönnun íbúa. Leitað er að einstaklingi með frumkvæði, góða samskiptahæfni og áhuga á faglegu, uppbyggilegu starfsumhverfi. Um framtíðarstarf er að ræða.
Sóltún heilbrigðisþjónusta er leiðandi þjónustuaðili á sviði velferðar- og öldrunarþjónustu á Íslandi. Markmið okkar er að auka velsæld og lífsgæði eldra fólks með fjölbreyttri og heildrænni heilbrigðisþjónustu, þar sem áhersla er lögð á virðingu, sjálfstæði og stuðning í daglegu lífi.
Undir merkjum Sóltúns eru rekin hjúkrunarheimili í Reykjavík og Hafnarfirði, auk endurhæfingarþjónustu, dagdvalar og heimaþjónustu. Þjónustan er veitt af þverfaglegu teymi fagfólks sem vinnur saman að því að tryggja öryggi, vellíðan og gott líf íbúa og skjólstæðinga.
Hjá Sóltúni er lögð sérstök áhersla á nærandi samfélag þar sem umhyggja, fagmennska og jákvæð samskipti eru í fyrirrúmi. Starfsfólk er stærsta styrkleiki þjónustunnar og því er rík áhersla lögð á gott starfsumhverfi, samvinnu og tækifæri til starfsþróunar.
Nánari upplýsingar veitir:
Hildur Björk Sigurðardóttir, forstöðumaður Sóltúni, hildurbjork@soltun.is
Hlökkum til að heyra frá þér.
