Krónan leitar að öflugum aðila í fullt starf vaktstjóra á höfuðborgarsvæðinu. Verkefni vaktstjóra eru að aðstoða og styðja við verslunarstjóra og stuðla að hvatningu meðal starfsfólks til að ná settum markmiðum.
Vinnutíminn er aðra hverja viku frá kl. 07:00-15:00 og hina vikuna frá 13:00-21:30. Þriðja hver helgi frá kl. 7:00-15:00. Mikilvægt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Krónan býður upp á fjölbreyttan og metnaðarfullan vinnustað þar sem hægt er að hafa áhrif og leiða verkefni með sýnilegum árangri.
Hjá Krónunni starfa um eitt þúsund og tvöhundruð manns, við eigum ánægðustu viðskiptavinina 9. árið í röð og erum með jafnlaunavottun.
Umsóknarfrestur er til og með 7. október 2026.

We deliver the right products to you in the cheapest way possible.