Icelandia

Vaktstjóri – Flybus á Keflavíkurflugvelli

Icelandia  •  Onsite  •  13 days ago
Expired
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Icelandia leitar nú að öflugum vaktstjóra sem vill vera hluti af hröðu og fjölbreyttu starfsumhverfi Flybus á Keflavíkurflugvelli. Starfið felur í sér bæði þjónustu við viðskiptavini og stuðning við starfsfólk — og krefst þess að viðkomandi sé fær um að taka skjótar ákvarðanir, leysa úr krefjandi málum og viðhalda faglegum og jákvæðum tón í hvívetna.

Óskandi er að viðkomandi geti hafið störf um miðjan júní.

Ferðaskrifstofa Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun. Flybus er ein þekktasta samgönguþjónusta landsins og hefur um árabil séð ferðalöngum fyrir öruggum og þægilegum samgöngum milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkur.

Helstu verkefni

  • Sala, þjónusta og upplýsingagjöf til viðskiptavina Flybus.
  • Daglegt utanumhald og ábyrgð á framkvæmd vaktar, þar á meðal mönnun og flæði.
  • Stuðningur og leiðbeiningar til starfsfólks á vakt.
  • Móttaka kvartana og meðhöndlun krefjandi samskipta.
  • Samskipti við aðra hópa og hagaðila innan Icelandia og við samstarfsaðila.

Hæfniskröfur

  • Reynsla af vaktstjórn eða sambærilegu hlutverki í þjónustustarfi.
  • Góð tæknileg hæfni og vald á tölvukerfum.
  • Framúrskarandi enskukunnátta í ræðu og riti. Íslenska er kostur en ekki krafa.
  • Sjálfstæði, skipulagshæfni og lausnamiðuð vinnubrögð.
  • Ráða vel við álag, tekur ákvarðanir af öryggi og vera með góða yfirsýn.
  • Þjónustulund, jákvæðni og sterk samskiptahæfni.

Við bjóðum upp á

  • Fjölbreytt og lifandi starfsumhverfi á Keflavíkurflugvelli.
  • Ábyrgðarmikið hlutverk í öflugu þjónustuteymi.
  • Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á upplifun viðskiptavina.
  • Góðan starfsanda og skemmtilegt vinnuumhverfi.

Hjá Icelandia verður þú hluti af teymi sem leggur metnað í að sýna gestum sínum fegurð Íslands. Við bjóðum upp á líflegt vinnuumhverfi, tækifæri til vaxtar og möguleika á að hafa raunveruleg áhrif á upplifun viðskiptavina okkar.

Staðsetning: Keflavíkurflugvöllur Vinnutími: 2-2-3 vaktafyrirkomulag.

Frekari upplýsingar: starf@icelandia.is

Icelandia

About Icelandia

Your Entrance to the Wonders of Iceland

Industry
Unknown
Company Size
51-200 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
Unknown
Social Media