Isavia

Vaktstjóri farþegaaksturs

Isavia  •  Onsite  •  1 day ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Við leitum að metnaðarfullum og þjónustumiðuðum vaktstjóra til starfa við farþegaakstur á Keflavíkurflugvelli.

Deild farþegaaksturs sér um akstur flugfarþega á athafnasvæði flugvallarins, þar á meðal akstur með rútum og þjónustu við farþega með skerta hreyfigetu. Starfsemin er mikilvægur hluti af heildarflæði farþega um flugvöllinn og krefst náins samstarfs við aðrar einingar innan Isavia. Unnið er í vaktakerfi í lifandi starfsumhverfi þar sem öryggi, þjónustugæði og skilvirkni eru í fyrirrúmi.

Í starfinu felst dagleg stjórnun vaktarinnar og þátttaka í þeirri þjónustu sem deildin sinnir. Vaktstjóri gegnir lykilhlutverki í að tryggja öruggt og skilvirkt flæði farþega og að verklag og gæðakröfur séu virtar í daglegum rekstri. Vaktstjóri vinnur einnig náið með starfsfólki og deildarstjóra að því að skapa jákvætt og árangursríkt vinnuumhverfi.

Um fullt starf er að ræða og unnið á dagvöktum í 5-5-4 vaktakerfinu.

Helstu verkefni

  • Daglegt skipulag og mönnun
  • Tryggja að verklagi í farþegaakstri sé fylgt
  • Yfirfara tímaskráningar í tímaskráningakerfi
  • Umsjón með tækjabúnaði og daglegu viðhaldi í samráði við deildarstjóra
  • Farþegaakstur, þ.m.t. akstur með farþega í hjólastólalyftu

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Próf á hópferðabifreið (D) kostur
  • Góð samskipta- og samvinnuhæfni
  • Stjórnunarreynsla æskileg
  • Reynsla af farþegaflutningum eða sambærilegum störfum kostur
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
  • Önnur aukin ökuréttindi kostur

Hvað býðst þér

  • Ábyrgðarfullt og fjölbreytt starf í lifandi umhverfi
  • Tækifæri til að þróa þig í leiðtogahlutverki
  • Öflugt teymi og gott starfsumhverfi
  • Starf á einum stærsta vinnustað landsins

Starfsstöð: Keflavíkurflugvöllur

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Umsóknarfrestur er til og með 10. júní 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafur Guðbergsson, deildarstjóri farþegaflutninga, olafur.gudbergsson@isavia.is

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.

Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Isavia

About Isavia

We connect the world through Iceland ✈️

Isavia has the important role of handling the operation and development of infrastructure that lays the foundation for Iceland’s air transport, connections with the outside world and flights between continents.

Keflavik Airport is the largest gateway into Iceland. It is one of the most important single infrastructures of the tourism industry and plays an important role in creating a good quality of life and prosperity in Iceland.

To meet that responsibility, we have a united team and strong employees, who work together and with others in a constructive way.

Industry
Aviation & Aerospace
Company Size
201-500 employees
Headquarters
Hafnarfjörður, IS
Year Founded
2010
Website
isavia.is
Social Media