Garðabær

Urriðaholtsskóli - textílkennari

Garðabær  •  Onsite  •  14 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Urriðaholtsskóli er samrekinn leik- og grunnskóli í Garðabæ fyrir börn á aldrinum 1-16 ára. Auglýst er eftir kennara í textíl til að vinna í teymi með list- og verkgreinakennurum skólans.

Teymisvinna einkennir starfshætti skólans bæði á meðal nemenda og starfsmanna, svo og milli skólastiga. Gildi skólans eru: Virðing, ábyrgð og umhverfi. Starfsumhverfi er gott og lögð áhersla á að vinna eftir gagnreyndum aðferðum. Skólaárið 2026-2027 verða rúmlega 650 nemendur við skólann, þar um 530 nemendur í 1.-10. bekk.

Helstu verkefni:

  • Skipuleggur nám, kennslu og námsmat nemenda samkvæmt markmiðum og námskrá
  • Að sinna daglegu fagstarfi og heldur utan um kennslu í textíl
  • Vinnur að skólaþróun og uppbyggingu skólasamfélagsins ásamt samtarfsfólki
  • Stuðlar að velferð nemenda og samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Tekur þátt í teymisvinnu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
  • Sérhæfing eða reynsla af kennslu í textíl
  • Áhugi á skólaþróun og faglegur metnaður
  • Sjálfstæði, sveigjanleiki, frumkvæði og góð samskiptahæfni
  • Góð tölvukunnátta
  • Reynsla af teymisvinnu í grunnskóla æskileg

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Hlunnindi:

  • Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.

Umsóknarfrestur er til og með 1. júni 2026. Gert er ráð fyrir að ráðning taki gildi 1. ágúst, um 100% stöðu er að ræða.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Þorgerður Anna Arnardóttir skólastjóri Urriðaholtsskóla, s. 5919500, netfang thorgerduranna@urridaholtsskoli.is og Una Guðrún Einarsdóttir aðstoðarskólastjóri grunnskólastigs, netfang unagudrun@urridaholtsskoli.is

Samkvæmt lögum verða umsækjendur sem eru ráðnir að skrifa undir heimild til upplýsingaöflunar úr sakaskrá.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélags.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Garðabær

About Garðabær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown