Garðabær

Urriðaholtsskóli - stuðningsfulltrúar

Garðabær  •  Onsite  •  14 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Urriðaholtsskóli óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa í 100% sérhæfðan stuðning á grunnskólastigi.

Urriðaholtsskóli er samrekinn leik- og grunnskóli í Garðabæ þar sem rúmlega 600 börn mun stunda nám skólaárið 2026-2027. Þar af um 500 nemendur í 1.-10. bekk og um 150 einstaklingar starfa við skólann.

Teymisvinna er einkennandi fyrir starfshætti skólans bæði á meðal nemenda og starfsmanna, svo og milli skólastiga. Gildi skólans eru: Virðing, ábyrgð og umhverfi. Leitað er eftir einstaklingum sem er tilbúinn að starfa að sveigjanlegu skólastarfi í teymisvinnu og samkvæmt skólastefnu Urriðaholtsskóla.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoða nemendur við daglegar athafnir og virka þátttöku í skólastarfi
  • Vinna eftir áætlun sem kennari eða þroskaþjálfi hefur útbúið
  • Aðstoða nemendur við að fylgja settum reglum um hegðun, umgengni og vinnubrögð
  • Leitast við að styðja nemendur í félagslegum samskiptum innan og utan kennslustunda

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Reynsla af starfi með börnum og/eða unglingum er kostur
  • Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Dugnaður, jákvæðni og ábyrgðarkennd

Hlunnindi:

  • Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi

Umsóknarfrestur er til og með 01. júní 2026. Gert er ráð fyrir að ráðning taki gildi í ágúst og möguleiki er á 100% starfi.

Nánari upplýsingar um starfið veita Þorgerður Anna Arnardóttir skólastjóri á netfangið thorgerduranna@urridaholtsskoli.is

Samkvæmt lögum verða umsækjendur sem eru ráðnir að skrifa undir heimild til upplýsingaöflurnar úr sakaskrá.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Garðabæjar.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Garðabær

About Garðabær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown