Garðabær

Urriðaholtsskóli - Frístundaleiðbeinandi í Urriðakot

Garðabær  •  Onsite  •  15 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Frístundastarf fer fram frá kl. 13:30 og stendur til kl. 16:30. Í boði eru tímavinnustörf og hlutastörf með sveigjanlegum vinnutíma eftir hádegi. Hentar vel sem aukavinna með námi. Í frístund dvelja börn frá 1.-4. bekk eftir að skóla lýkur við leik og ýmis fjölbreytt verkefni.

Leitað er eftir einstaklingum sem eru tilbúnir að starfa að sveigjanlegu tómstundastarfi í teymisvinnu samkvæmt stefnu Urriðaholtsskóla og kom að uppbyggingu skólasamfélagsins. Gildi skólans eru; virðing, ábyrgð, umhverfi. Í skólanum verða yfir 600 nemendur frá leikskóla og upp grunnskólann skólaárið 2026-2027. Við skólann starfa vel yfir 150 einstaklingar sem hafa það að markmiði að mæta börnum eftir þörfum þeirra í leik og starfi og koma til móts við áhuga þeirra og þarfir. Vel er búið að börnum og fullorðnum og aðstaða góð. Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.urridaholtsskoli.is

Helstu verkefni:

  • Þátttaka í skipulagningu, undirbúningi og framkvæmd á fjölbreyttu og faglegu frístundastarfi
  • Stuðlar að góðum aga og jákvæðum samskiptum út frá væntingum og gildum Urriðaholtsskóla
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við annað starfsfólk skólans og aðstandendur
  • Leitast við að virkja alla nemendur óháð getu og þroska í fjölbreytt verkefni og tekur fullan þátt í þeim verkefnum og viðburðum sem eru skipulögð
  • Sinnir frágangi á starfssvæði frístundar í lok dags
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur viðkomandi

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Uppeldismenntun sem nýtist í starfinu er kostur
  • Reynsla af starfi með börnum og/eða unglingum er kostur
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 skv. evrópska tungumálarammanum
  • Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
  • Stundvísi, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Dugnaður, jákvæðni og ábyrgðarkennd

Hlunnindi:

  • Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi

Umsóknarfrestur er til og með 1. júní 2026. Gert er ráð fyrir að ráðning taki gildi í ágúst nk.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Þorgerður Anna Arnardóttir skólastjóri Urriðaholtsskóla, s. 5919500, netfang thorgerduranna@urridaholtsskoli.is eða Íris Ósk Ingadóttir forstöðumaður frístundar, netfang irisinga@urridaholtsskoli.is

Samkvæmt lögum verða umsækjendur sem eru ráðnir að skrifa undir heimild til upplýsingaöflunar úr sakaskrá.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Garðabæjar

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Garðabær

About Garðabær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown