The City of Reykjavik

Umsjónarkennari 1. bekkjar í Laugarnesskóla skólaárið 2026-2027

The City of Reykjavik  •  Onsite  •  10 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Laugarnesskóli auglýsir lausa stöðu umsjónarkennara í fyrsta bekk skólaárið 2026-2027.

Laugarnesskóli stendur við Kirkjuteig 24 í Reykjavík og er einsetinn grunnskóli fyrir nemendur í 1.- 6. bekk. Einkunnarorð skólans eru lífsgleði, nám, samvinna, kærleikur og ósk. Í Laugarnesskóla er allt starfsfólk samstíga og vinnur saman að stefnumörkun og forgangsröðun. Skólastarfið á að vera uppbyggjandi þar sem metnaður ríkir og virðing er borin fyrir hverjum og einum. Kennsluhættir í Laugarnesskóla einkennast af fjölbreytni þar sem skólinn reynir að koma til móts við ólíkar þarfir og áhuga nemenda. Skólaumhverfi skólans á að vera hlýlegt og aðlaðandi fyrir alla þá sem tengjast skólanum. Laugarnesskóli vinnur eftir aðferðum leiðsagnarnáms og í lestrarnámi er notast við Byrjendalæsi.

Um er að ræða tímabundna ráðningur í starf umsjónarkennara skólaárið 2026-2027. Skólastarf Laugarnesskóla mun flytjast í bráðabirgðahúsnæði, svokallað Skólaþorp, í áföngum á skólaárinu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að annast kennslu samkvæmt meginmarkmiðum Aðalnámskrá grunnskólanna með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda.
  • Að vinna við námsmat í Mentor, nemendaskrár og aðrar nauðsynlegar skýrslur.
  • Að annast upplýsingagjöf og samskipti við forsjáraðila nemenda.
  • Að hafa hagsmuni nemenda að leiðarljósi og sýna hverjum og einum virðingu, áhuga og umhyggju.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi er skilyrði.
  • Framúrskarandi tök á íslensku máli, töluðu og skrifuðu.
  • Mikil samskipta- og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og faglegur metnaður.
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi.
  • Skipulagshæfileikar.
  • Góð tölvukunnátta.

Umsóknarfrestur er til og með 3. júní nk. og eru umsækjendur af öllum kynjum hvattir til að sækja um störfin. Laun eru samkvæmt kjarasamningum KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Björn Gunnlaugsson skólastjóri gegnum netfangið bjorn.gunnlaugsson@reykjavik.is

The City of Reykjavik

About The City of Reykjavik

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
1,001-5,000 employees
Headquarters
Reykjavik, IS
Year Founded
1786
Social Media