The City of Reykjavik

Umsjónarkennarar á yngra stigi frá 1. ágúst 2026

The City of Reykjavik  •  Onsite  •  1 day ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Í Fellaskóla er fjölbreyttur og hæfileikaríkur nemendahópur. Flestir nemendanna tala fleiri en eitt tungumál og tengjast fjölmörgum löndum og menningarsvæðum. Með nemendum starfar öflugur hópur starfsfólks. Skólastarfið einkennist af jákvæðum skólabrag ásamt samvinnu kennara sem miðar að því að koma til móts við ólíkar þarfir nemenda, styrkja samskipti innan nemendahópsins og skapa metnaðarfullt námsumhverfi án aðgreiningar þar sem nemendur geta látið drauma sína rætast. Við höfum undanfarið unnið að ýmsum verkefnum til að bæta kennslu og aðra þjónustu við nemendur. Megináhersla er á málþroska og læsi, leiðsagnarnám og teymisvinnu kennara, ásamt tónlist og skapandi skólastarfi. Í skólanum starfa þrír deildarstjórar verkefna sem styðja við þessa þætti. Fellaskóli er skóli án aðgreiningar og meginstefnan er að sérkennsla og ÍSAT kennsla fari fram í bekkjarumhverfi. Mikil áhersla er á læsi í yngstu árgöngunum og við vinnum náið með leikskólum hverfisins til að efla málþroska nemenda. Í Fellaskóla starfar talmeinafræðingur. Fellaskóli er símalaus skóli, sem þýðir að nemendur nota ekki síma á skólatíma. Við bjóðum upp á skemmtilegt starfsumhverfi, flottan starfsmannahóp og rík tækifæri til að þróast í starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Annast kennslu nemenda á yngra stigi í samstarfi við teymi kennara.
  • Umsjón með hópi nemenda á yngra stigi.
  • Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsfólki.
  • Stuðla að farsæld nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari eða önnur menntun / reynsla sem nýtist í starfi.
  • Áhugi á að starfa með börnum.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Faglegur metnaður.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Reynsla af teymisvinnu er kostur.
  • Mjög góð íslenskukunnátta (C2).

Upplýsingar um starfið gefa Bryndís Snorradóttir aðstoðarskólastjóri, bryndis.snorradottir@reykjavik.is eða Helgi Gíslason skólastjóri, helgi.gislason@reykjavik.is eða í síma 4117530.

The City of Reykjavik

About The City of Reykjavik

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
1,001-5,000 employees
Headquarters
Reykjavik, IS
Year Founded
1786
Social Media