Mögnum

UMSJÓN MÖTUNEYTIS

Mögnum  •  Akureyri, IS (Onsite)  •  2 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Íslandsbanki á Akureyri leitar að jákvæðum og skipulögðum einstaklingi til að sjá um mötuneyti starfsfólks.

Ef þú hefur áhuga á matargerð, nýtur þess að vinna sjálfstætt og leggur metnað í góða þjónustu, þá eum við að leita að þér.

Um er að ræða afleysingu í 1 ár og er starfshlutfall 50%-60%.

Æskilegast væri að viðkomandi gæti hafið störf í september.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með daglegum rekstri mötuneytis á tuttugu manna vinnustað.
  • Undirbúningur og matreiðsla hádegisverðar
  • Innkaup fyrir mötuneyti
  • Frágangur og þrif samkvæmt hreinlætisreglum
  • Skipulagning matseðla
  • Samstarf við starfsfólk og þjónustuaðila

Umsóknarfrestur er til og með 12. júlí 2026.

Sótt er um á  www.mognum.is

Með umsókn þarf að fylgja með ítarleg ferilsskrá auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.

Nánari upplýsingar veita Sigríður Ólafsdóttir;  sigga@mognum.is og Telma Eiðsdóttir; telma@mognum.is

Mögnum

About Mögnum

Öflugt og framsækið þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðningum, ráðgjöf, fræðslu og markþjálfun fyrir fólk og vinnustaði sem vilja ná lengra.

Mögnum leggur áherslu á viðurkenndar nálganir og faglegar aðferðir sem skila viðskiptavinum virði og árangri. Mögnum var stofnað árið 2017 og er eina fyrirtækið sem býður upp á sambærilega þjónustu utan höfuðborgarsvæðisins.

Mögnum það sem á svæðinu býr svo við eflumst sem samfélag.

Industry
Consulting & Advisory
Company Size
1-10 employees
Headquarters
Akureyri, IS
Year Founded
2017
Website
mognum.is
Social Media