Félagsstarf fullorðinna í Hvassaleiti 56-58 leitar að starfsmanni til að vera með umsjón yfir eldhúsinu. Um er að ræða opið félagsstarfi sem býður upp á hádegismat og selur veitingar í eftirmiðdags kaffi. Umsjónarmaður í eldhúsi hefur yfirumsjón með daglegum rekstri eldhússins og skipuleggur störfin í samræmi við almenna heilbrigðis- og hollustuhætti. Annast móttöku og framreiðslu hádegisverðar frá framleiðslueldhúsi. Ábyrgð á skipulagningu og framreiðslu á hádegismat og eftirmiðdags kaffi. Sinnir almennum eldhússtörfum og þvotti frá eldhúsi. Ber ábyrgð á daglegu uppgjöri og stendur skil á því til forstöðumanns. Sér um að húsnæði sé tilbúið til viðeigandi notkunar og ber ábyrgð á frágangi eftir notkun.
Helstu verkefni og ábyrgð:
· Skipuleggja dagleg störf og annast verkstjórn í eldhúsi.
· Ábyrgð á áætlunum um pantanir/innkaup á matvælum og hreinlætisbúnaði og eftirlit með birgðum.
· Annast pantanir, móttöku og framreiðslu hádegisverðar frá framleiðslueldhúsi.
· Undirbúa kaffisölu og sjá um bakstur.
· Annast uppgjör og stendur skil á sölu í eldhúsi til yfirmanns.
· Sinna almennum eldhússtörfum, s.s. að leggja á borð, prenta út matseðla, aðstoða þá sem þurfa aðstoð og sjá um sérrétti.
· Sjá um að þrif og frágangur í eldhúsi sé í samræmi við reglur heilbrigðiseftirlitsins og hefur eftirlit með að hitastig á kæliskápum og frystum sé rétt.
· Sjá um að húsnæði sé tilbúið til viðeigandi notkunar og ber ábyrgð á frágangi eftir notkun.
· Annast undirbúning og taka þátt í framkvæmd þegar sérstakir viðburðir eru á dagskrá, t.d. í tengslum við sýningar, fundahöld og/eða aðra uppákomur.
· Önnur þau störf sem starfsmanni kunna að vera falin af yfirmanni.
Hæfniskröfur
· Reynsla af eldhússtörfum.
· Reynsla af verkstjórn kostur.
· Hæfni í mannlegum samkiptum og jákvætt viðmót.
· Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
· Reglusemi og þrifnaður.
· Góð almenn menntun
· Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
Í samræmi við mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar og nýsamþykkta velferðarstefnu er lögð áhersla á að starfsstaðir velferðarsviðs endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Við hvetjum því fólk af öllum kynjum, fatlað fólk og fólk með fjölbreyttan menningarlegan bakgrunn til að sækja um starfið.
Um er að ræða 100% starf.
Vinnutími er kl. 8-16 virkar daga. Á móti kemur stytting vinnuvikunar sem er samkomuatriði milli starfsmanns og vinnustaðarins.
Fríðindi í starfi:
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar veitir Hörður Sturluson hordur.sturluson@reykjavik.is

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.