Sóltún hjúkrunarheimili, hluti af Sóltúni heilbrigðisþjónustu, leitar að starfsfólki með hjartað á réttum stað í störf við umönnun. Um framtíðarstarf er að ræða.
Langar þig að vinna í góðum félagsskap og í gefandi starfsumhverfi þar sem þú tekur ríkan þátt í daglegu lífi aldraðra? Þá gæti þetta verið starfið fyrir þig.
Við leitum að duglegum, jákvæðum og stundvísum einstaklingum til starfa við umönnun aldraðra.
Umsækjendur þurfa að hafa ríka samskiptahæfni og hafa gaman af því að umgangast eldra fólk.
Sóltún hefur á að skipa öflugum hópi starfsmanna með mikinn metnað fyrir vellíðan og lífsgæðum íbúa. Við leggjum áherslu á styðjandi starfsumhverfi þar sem starfsfólk fær tækifæri til að vaxa og þróast í starfi.
Sóltún heilbrigðisþjónusta er leiðandi þjónustuaðili á sviði velferðar- og öldrunarþjónustu á Íslandi. Markmið okkar er að auka velsæld og lífsgæði eldra fólks með fjölbreyttri og heildrænni heilbrigðisþjónustu, þar sem áhersla er lögð á virðingu, sjálfstæði og stuðning í daglegu lífi.
Undir merkjum Sóltúns eru rekin hjúkrunarheimili í Reykjavík og Hafnarfirði, auk endurhæfingarþjónustu, dagdvalar og heimaþjónustu. Þjónustan er veitt af þverfaglegu teymi fagfólks sem vinnur saman að því að tryggja öryggi, vellíðan og gott líf íbúa og skjólstæðinga.
Hjá Sóltúni er lögð sérstök áhersla á nærandi samfélag þar sem umhyggja, fagmennska og jákvæð samskipti eru í fyrirrúmi. Starfsfólk er stærsta styrkleiki þjónustunnar og því er rík áhersla lögð á gott starfsumhverfi, samvinnu og tækifæri til starfsþróunar.
