Akureyrarbær

Umhverfis- og mannvirkjasvið: Yfirverkstjóri á sviði gatna, malbikunar og snjómoksturs

Akureyrarbær  •  Onsite  •  1 hour ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Umhverfismiðstöð Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða yfirverkstjóra gatnamála, malbikunar og snjómoksturs. Um er að ræða 100% ótímabundna stöðu.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Umhverfismiðstöð sér meðal annars um rekstur gatna og opinna svæða í bænum, almenna umhirðu bæjarins, slátt, rekstur Strætisvagna Akureyrar og ferliþjónustu og rekstur áhaldahúss ásamt fjölda annarra verkefna.

Helstu verkefni eru:

  • Umsjón með viðhaldi og rekstri Malbikunarstöðvar.
  • Verkstýrir og hefur eftirlit með starfsmönnum og verktökum.
  • Verkstýrir lagningu malbiks í nýframkvæmdum og viðhaldi.
  • Viðhald malargatna.
  • Viðhald og lagning kantsteina og úrtaka.
  • Viðhald fráveitukerfa vegna yfirborðsvatns.
  • Stýring á snjómokstri og hálkuvörnum gatna, stétta, stíga og bifreiðastæða.
  • Ýmis tilfallandi verkefni vegna þjónustu Umhverfismiðstöðvar við bæjarbúa, stofnanir og fyrirtæki bæjarins.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Iðnmenntun eða jafngildi hennar aflað með sjálfsmenntun reynslu og verkþjálfun í hliðstæðu starfi.
  • Reynsla af sambærilegu starfi er æskileg.
  • Réttindi á þungavinnuvélar er kostur.
  • Þekking á öryggismálum og merkingum vegna framkvæmda við umferðarmannvirki í bæjarlandinu er kostur.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Starfið krefst sjálfstæðis, frumkvæðis og útsjónarsemi.
  • Góð þjónustulund og hæfni í samskiptum.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar og umhverfismiðstöðvar í gegnum netfangið dora@akureyri.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í Þjónustuveri Akureyrarbæjar Geislagötu 9.

Umsóknarfrestur er til og með 18. júní 2026.

Akureyrarbær

About Akureyrarbær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown