Job Description
Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða drífandi einstakling í fjölbreytt starf, með áherslu á eftirlit og umsjón með framkvæmdum og viðhaldi gatna og stíga, verkefnastjórn, auk annarra verkefna. Um 100% ótímabundna stöðu er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Hönnunarverkefni á sviði umferðar- og gatnamála
- Umsjón og eftirfylgni með uppbyggingu göngu- og stígakerfis
- Umsjón með endurbyggingu eldri hverfa
- Umsjón með uppbyggingu nýrra hverfa
- Eftirlit með framkvæmdum/verkefnastjórn og mælingar
- Gatna- og stígalýsing í bæjarlandinu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Gerð er krafa um háskólapróf í verk-, tækni- eða byggingarfræði eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Meistaragráða sem nýtist í starfi er kostur.
- Góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg, góð þekking og reynsla af teikniforritum s.s. Microstation og Excel er kostur.
- Starfinu fylgja mikil samskipti við íbúa bæjarins, hönnuði, verktaka og starfsmenn Umhverfismiðstöðvar og Skipulagssviðs. Það krefst lipurðar í mannlegum samskiptum, frumkvæðis og skipulagðra og sjálfstæðra vinnubragða.
- Hæfni til stjórnunar, skipulagningar, nýsköpunar og innleiðingar nýrra hugmynda og vinnubragða.
- Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
- Trúnaður og þagnarskylda.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjarafélags Tæknifræðingafélags Íslands, Stéttarfélags byggingarfræðinga og Stéttarfélags verkfræðinga.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Dóra Sif Sigtryggsdóttir í gegnum netfangið dora@akureyri.is
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Umsóknarfrestur er til og með 15. október 2026.