Job Description
Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða verkefnastjóra í nýframkvæmdir og endurbætur fasteigna og mannvirkja. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega. Um 100% ótímabundna stöðu er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Umsjón með nýframkvæmdum endurbótum fasteigna og annarra mannvirkja.
- Gerð nýframkvæmdaáætlana.
- Umsjón með útboðsferli hönnunar og framkvæmdaverkefna.
- Stýring og eftirlit með framkvæmdum.
- Þátttaka í þróun á stöðluðum/bestu lausnum á sviði framkvæmda.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Gerð er krafa um háskólapróf í verk-, tækni- eða byggingarfræði, eða sambærileg háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Meistaragráða sem nýtist í starfi er kostur.
- Farsæl reynsla af verkefnastjórnun á hönnunar og/- eða framkvæmdastigi.
- Fagleg þekking á aðferðafræði verkefnastjórnunar. Vottun sem verkefnastjóri er kostur.
- Þekking á hönnunarferli og reynsla af hönnunarrýni.
- Ríkir samskiptahæfileikar, jákvætt og lausnamiðað viðhorf.
- Frumkvæði, fagmennska og sjálfstæð vinnubrögð.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjarafélags Tæknifræðingafélags Íslands, Stéttarfélags byggingarfræðinga og Stéttarfélags verkfræðinga.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Dóra Sif Sigtryggsdóttir í gegnum netfangið dora@akureyri.is
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Umsóknarfrestur er til og með 15. október 2026.