Viltu móta stafræna framtíð Reykjavíkurborgar?
Þjónustu- og nýsköpunarsvið leitar að reynslumiklum tæknilegum leiðtoga til að móta og leiða þróun hugbúnaðarlausna Reykjavíkurborgar. Um er að ræða fjölbreytt og áhrifamikið starf þar sem þú berð ábyrgð á heildararkitektúr og vinnur náið með teymum að þróun öruggra, skalanlegra og notendamiðaðra lausna. Þú situr jafnframt í tækniráði með upplýsingatæknishönnuði og tæknistjóra gagnaþjónustu.
Lausnirnar eru byggðar í nútímalegu skýjaumhverfi og fela m.a. í sér samþættingar milli kerfa og gagnalausna sem styðja við þjónustu borgarinnar.
Í starfinu sameinast stefnumótun og tæknileg forysta með virkri þátttöku í daglegu starfi þróunarteyma. Þú vinnur náið með forriturum og öðrum sérfræðingum, styður teymi í tæknilegum ákvörðunum og leggur áherslu á miðlun þekkingar og faglega þróun.
Þú hefur jafnframt yfirsýn yfir lausnir í þróun og rekstri og vinnur markvisst að umbótum á ferlum, gæðum og tæknilegri nálgun.
Sem tæknistjóri hugbúnaðarþróunar munt þú...
Menntunar- og hæfniskröfur
Þjónustu- og nýsköpunarsvið er fyrsta flokks vinnustaður þar sem góð liðsheild og virðing einkennir menninguna. Við leggjum mikið upp úr faglegu umhverfi þar sem frumkvæði og þori er fagnað. Verkefnin eru krefjandi og skemmtileg og enn betra er að þau stuðla að því að einfalda og bæta líf borgarbúa og starfsfólks borgarinnar.
Þjónustu og nýsköpunarsvið hefur unnið til margra verðlauna eins og Nýsköpunarverðlaun hins opinbera í flokknum „Sveitafélag/stofnun ársins“ og til UT-verðlaun Ský 2025 í flokknum stafræn opinber þjónusta.
Þjónustu- og nýsköpunarsvið er regnbogavottaður vinnustaður. Markmið með regnbogavottun Reykjavíkurborgar er að gera starfsemi hennar hinseginvænni, bæði fyrir starfsfólk og þjónustuþega og einnig koma í veg fyrir beina og óbeina mismunun í garð hinsegin fólks.
Við bjóðum upp á
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 26. maí nk. Nánari upplýsingar um starfið veitir María Lovísa Ámundadóttir deildarstjóri hugbúnaðarþróunar í gegnum tölvupóstfangið maria.lovisa.amundadottir@reykjavik.is. Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem umsækjandi gerir grein fyrir áhuga og hæfni í starfið.
Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum ásamt frammistöðu í viðtölum. Allir áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði eftir að umsóknarfrestur rennur út. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Reykjavíkurborg er skapandi og metnaðarfullur vinnustaður ásamt því að vera sá stærsti á Íslandi.
Vakin er athygli á stefnu um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.