Viltu taka þátt í að hækka spennustigið í orkuskiptum?
Orka náttúrunnar leitar að aflmiklum rafvirkja til að taka þátt í að hækka spennustigið í orkuskiptum.
Ef þú vilt setja handbragð þitt á framtíðarsamgöngur á Íslandi þá hvetjum við þig til þess að sækja um starfið.
Hleðsluþjónusta ON sinnir fjölbreyttumog krefjandi verkefnum, s.s. við uppsetningu-, viðhald- og viðgerðir á búnaði hleðslustöðva auk viðgerða og viðhaldi fjarskiptakerfa og annarra stoðkerfa.
Í hleðsluteymi ON munt þú gegna mikilvægu hlutverki í áframhaldandi þróun á þjónustu við viðskiptavini fyrirtækisins, þá ánægðustu á raforkumarkaði samkvæmt Ánægjuvoginni.
Hæfniskröfur
Við höfum mikinn áhuga á að bæta einstakling í teymið sem býr yfir ríkri þjónustulund og góðri tölvukunnáttu.
Við leitum sérstaklega að einstaklingum sem:
Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningabréf þar sem umsækjendur gera grein fyrir hæfni sinni í starfið með vísan í hæfniskröfur.
Við erum vinnustaður sem leggur sig fram um að taka vel á móti fólki.
Við trúum því að með því að bjóða starfsfólki upp á sveigjanlegt og fjölskylduvænt starfsumhverfi, sem auðveldar fólki að samræma vinnu og einkalíf, séum við að leggja grunn að starfsánægju og helgun starfsfólks til framtíðar.
Umsóknarfrestur er til og með 5. ágúst 2026.
Nánari upplýsingar veitir Stefnir Elíasson, deildarstjóri hleðsluþjónustu ON, Stefnir.Eliasson@on.is.
Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Orka náttúrunnar framleiðir rafmagn og heitt vatn í jarðhitavirkjunum á Hellisheiði og Nesjavöllum ásamt framleiðslu rafmagns með vatnsafli í Andakílsárvirkjun.
ON er stærsta jarðvarmafyrirtæki landsins og selur rafmagn til fyrirtækja og heimila um allt land en framleiðir heitt vatn til sölu og dreifingar hjá systurfélagi þess, Veitum.
ON er dótturfélag Orkuveitunnar sem er í eigu Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar.
ON framleiðir ekki bara umhverfisvæna orku fyrir heimili, fyrirtæki og farartæki heldur leggur fyrirtækið einnig ríka áherslu á rannsóknir, nýsköpun og sjálfbærni með það fyrir augum að tryggja komandi kynslóðum betri lífsgæði.

ON Power produces and sells geothermally generated electricity for the Icelandic market. As well as providing the capital area of Reykjavík with hot water.
The objective is to protect the interests of the country’s natural resources and the company’s customers, guided by the principle of sustainability. In so doing, the company supports innovation and the responsible utilisation of natural resources and promotes energy switching to a lower ecological footprint for the benefit of society as a whole.
//
Orka náttúrunnar framleiðir og selur rafmagn á ábyrgan og umhverfisvænan hátt til allra landsmanna á Íslandi.
Markmiðið er að gæta hagsmuna auðlinda landsins og viðskiptavina fyrirtækisins með sjálfbærni að leiðarljósi. Þar með styður fyrirtækið við nýsköpun, ábyrga nýtingu auðlindarinnar og flýtir fyrir orkuskiptum með minna vistspori, samfélaginu öllu til heilla.