Mögnum

TÆKNIFAGMAÐUR Í VÉL- OG KÆLIKERFUM

Mögnum  •  Akureyri, IS (Onsite)  •  2 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

atNorth er í áframhaldandi vexti á Akureyri og leitar að tæknifólki sem vill taka þátt í uppbyggingu og rekstri öflugra gagnavera. Við viljum heyra frá vélstjórum, vélvirkjum, pípurum, kælitæknum og öðrum með iðn- eða tæknimenntun og sterkan tæknilegan bakgrunn.

Þetta starf er ráðning til framtíðar og fullt stöðugildi. Starfið hentar öllum kynjum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Þú kemur að rekstri og viðhaldi mikilvægra tæknikerfa í gagnaverinu okkar á Akureyri. Þar á meðal eru loft- og vatns- kælikerfi fyrr öflugan tölvu- og gervigreindarbúnað, auk varaaflkerfa.

Starfið er fjölbreytt og hentar vel tæknifólki sem hefur áhuga á öflugum innviðum og nútímatækni.

  • Rekstur, eftirlit og viðhald á vatns- og loft- kælikerfum
  • Eftirlit, prófanir og viðhald varaaflskerfa
  • Uppsetning, tengingar og stillingar á stjórn, og mælibúnaði
  • Bilanagreining og úrlausn tæknilegra vandamála
  • Taka virkan þátt í stöðugum umbótum og þróun verklags

Menntunar- og hæfniskröfur

Þú þarft að hafa þekkingu og reynslu af því að vinna með vatns- og loftkælikerfi. Menntun á sviði véltækni, vélstjórn, vélavirkjunar eða kælitækni kemur sér mjög vel.

  • Menntun sem nýtist við rekstur vélbúnaðar
  • Mikil færni í ensku við lestur og skrif
  • Vinna vel í teymi og að geta glaðst með vinnufélögum
  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði
  • Umbótahugarfar, öryggisvitund og þjónustulund
  • Hreint sakavottorð

Helstu kostir þess að vinna hjá atNorth eru

  • Við tryggjum að þú fáir viðeigandi þjálfun, símenntun og aðgang að þekkingu varðandi rekstur gagnavera
  • Heilsumiðað hugarfar með markmið um jafnvægi starfs og einkalífs
  • Íþróttastyrkur til rækta líkama og sál
  • Skemmtinefnd sem heldur stuðinu gangandi
  • Veitingaþjónusta send á vinnustaðinn
  • Fjarskiptapakki og símastyrkur
  • Alþjóðlegur vinnustaður með fjölmenningu
  • Tækifæri til þess að ferðast og kynnast öðrum gagnaverum okkar á Norðurlöndunum

Umsóknarfrestur er til og með 17.nóvember 2026

Sótt er um á www.mognum.is

Með umsókn þarf að fylgja með ítarleg ferilsskrá auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein yrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.

Nánari upplýsingar veita Sigríður Ólafsdóttir; sigga@mognum.is og Telma Eiðsdóttir; telma@mognum.is

Um atNorth

atNorth er leiðandi norrænt fyrirtæki á sviði gagnavera sem býður upp á sjálfæra og afkastamikla þjónustu og sérsniðnar lausnir fyrir leiðandi fyrirtæki og stofnanir á Íslandi, í Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku.

Sjálfbærni er kjarninn í starfsemi atNorth. Gagnaver fyrirtækisins eru knúin með endurnýjanlegri orku og hönnuð samkvæmt meginreglum hringrásarhagkerfisins.

Með nýstárlegri hönnun, skilvirkri orkunýtingu og snjöllum rekstri tryggir atNorth örugga, áreiðanlega og afkastamikla innviði fyrir viðskiptavini sína.

Höfuðstöðvar atNorth eru í Reykjavík og fyrirtækið rekur átta gagnaver á Norðurlöndum. Jafnframt eru ný gagnaver í uppbyggingu í Finnlandi, Danmörku, Svíþjóð og Noregi.

Hjá atNorth koma saman framúrskarandi tækniþekking og vinnustaðamenning sem byggir á samvinnu, ábyrgð og trausti. Fyrirtækið leggur áherslu á að starfsfólk fái tækifæri til að þróast í starfi, taka frumkvæði og hafa raunveruleg áhrif á starfsemina.

Með því að ganga til liðs við alþjóðlegt teymi atNorth færð þú tækifæri til að taka þátt í mótun framtíðar sjálfbærra stafrænna innviða.

Frekari upplýsingar má finna á atNorth.com og síðu fyrirtækisins á LinkedIn.

English below

Mögnum

About Mögnum

Öflugt og framsækið þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðningum, ráðgjöf, fræðslu og markþjálfun fyrir fólk og vinnustaði sem vilja ná lengra.

Mögnum leggur áherslu á viðurkenndar nálganir og faglegar aðferðir sem skila viðskiptavinum virði og árangri. Mögnum var stofnað árið 2017 og er eina fyrirtækið sem býður upp á sambærilega þjónustu utan höfuðborgarsvæðisins.

Mögnum það sem á svæðinu býr svo við eflumst sem samfélag.

Industry
Consulting & Advisory
Company Size
1-10 employees
Headquarters
Akureyri, IS
Year Founded
2017
Website
mognum.is
Social Media