Við leitum að jákvæðum og drífandi þjónustu- og sölumanni til að sinna sölu á dekkjum og tengdum vörum til einstaklinga og fyrirtækja. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf með sérstakri áherslu á dekk fyrir vörubíla, stærri vélar og tæki. Starfið felur í sér ráðgjöf og sölu til viðskiptavina, uppbyggingu og viðhald viðskiptasambanda og virka þátttöku í áframhaldandi vexti fyrirtækisins. Starfsstöð er hjá Dekkjahöllinni í Miðhrauni.
Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á bílum og tækjum sem hefur þjónustulund og góð samskiptafærni.
Dekkjahöllin er eitt öflugasta dekkjafyrirtæki landsins og hefur verið á meðal Framúrskarandi fyrirtækja Creditinfo í 15 ár í röð. Fyrirtækið er umboðsaðili leiðandi framleiðenda á borð við Continental, Yokohama og Falken.
Móðurfélag Dekkjahallarinnar er Inchcape á Íslandi sem er hluti af alþjóðlega fyrirtækinu Inchcape Plc sem sérhæfir sig í sölu og dreifingu á bifreiðum og er skráð í kauphöllina í London. Inchcape sem er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði starfar á 38 mörkuðum með yfir 16.000 starfsmenn og vinnur með stærstu bílaframleiðendum heims. Starfsmenn félaganna eru um 250 talsins.
Af hverju að vinna með okkur?
Um framtíðarstarf er að ræða. Nánari upplýsingar um starfið veitir Reynir Stefánsson, reynir@dekkjahollin.is

Inchcape is the world's leading independent automotive distribution partner.
We work with more than 60 of the world's most loved automotive brands to power better mobility, today and in the future. Our over 16,000 team members work across 40+ markets in the Americas, Asia-Pacific and Europe & Africa.
We are listed on the London Stock Exchange and our headquarters are in London, UK.