Akureyrarbær

Tilsjónarstarf: Barnaverndarþjónustan á Norðurlandi eystra

Akureyrarbær  •  Onsite  •  4 months ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Velferðarsvið Akureyrarbæjar, barnaverndarþjónustan, óskar eftir starfsfólki til að sinna persónulegum stuðningi við foreldra og börn í formi tilsjónar og/eða persónulegrar ráðgjafar.

Tilsjón: Tilsjónaraðili leiðbeinir og styður foreldra við að sinna forsjár- og uppeldisskyldu sinni. Samningur við tilsjónaraðila er einstaklingsbundinn og sniðinn að þörfum foreldra og markmiðum með úrræðinu í samráði við foreldra. Stuðningurinn fer fram á heimili fjölskyldunnar þar sem foreldri fær persónulega stuðning og leiðbeiningar í uppeldi og umönnun barna sinna. Starf tilsjónar getur einnig falist í óboðuðu eftirliti með heimili eða eftirliti með umgengni.

Persónuleg ráðgjöf:Persónulegur ráðgjafi veitir barni eða ungmenni persónulegan stuðning þar sem stuðst er við ákveðin markmið. Tilgangurinn er að styrkja barnið eða ungmennið félagslega, siðferðislega og tilfinningalega, svo sem í sambandi við vinnu, menntun og tómstundir. Lögð er áhersla á samskipti og virkni.

Um er að ræða tímabundin verkefni með sérstökum samningi þar sem getið er um umfang og markmið. Unnið er í tímavinnu, 20 tíma á mánuði að jafnaði, og vinnutími er oftast nær seinnipart dags og/eða um helgar. Starfið gæti því hentað vel með námi og/eða annarri vinnu.

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af starfi með fólki er kostur.
  • Vandvirkni, samviskusemi, þagmælska og trúnaður í samskiptum við notendur og aðra er tengjast starfinu.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
  • Samskiptafærni og sveigjanleiki vegna mismunandi þarfa þeirra einstaklinga sem verið er að styðja.
  • Jákvætt viðhorf til fólks og réttinda þeirra.
  • Virðing fyrir þeim einstaklingi sem veita þarf stuðning og/eða ráðgjöf.
  • Áhugi á og vilji til að tileinka sér nýja þekkingu og leggja sitt af mörkum til að bæta þjónustuna og auka lífsgæði þeirra einstaklinga sem verið er að styðja.
  • Aðeins einstaklingar sem eru 20 ára og eldri koma til greina.
  • Hreint sakavottorð er skilyrði.
  • Bílpróf er kostur.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Einingar-Iðju.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Vilborg Þórarinsdóttir, netfang vilborg@akureyri.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Akureyrarbær

About Akureyrarbær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown