
Vesturmiðstöð óskar eftir að ráða öflugan teymisstjóra í tímabundið búsetuúrræði fyrir karlmenn sem hafa langvarandi reynslu af heimilisleysi. Á heimilinu er veitt sólarhringsþjónusta. Starfsfólk starfar inni á heimili íbúa og veitir fjölbreyttan stuðning með það að markmiði að aðstoða íbúa við að halda heimili, efla vald yfir eigin aðstæðum, auka lífsgæði og eiga innihaldsríkt líf.
Markmið með þjónustunni er að veita heimilislausum karlmönnum með miklar og flóknar þjónustuþarfir tímabundna búsetu til að meta betur langvarandi stuðnings- og húsnæðisþörf íbúa á heildstæðan og einstaklingsmiðan hátt. Með því eru gerðar ákveðnar kröfur um skipulag og innihald þjónustunnar. Þjónustan er einstaklingsmiðuð, batamiðuð og tekur mið af hugmyndafræði um sjálfstætt líf og skaðaminnkun.
Mikilvægt er að starfsfólk treysti sér í að sinna krefjandi verkefnum af yfirvegun, þar sem mannleg reisn og samkennd er höfð að leiðarljósi við íbúa.
Hlunnindi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásrún Ósk Einarsdóttir forstöðukona heimilis í netfangið asrun.osk.einarsdottir@reykjavik.is

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.