Hagvangur

Sviðsstjóri sölu- og markaðssviðs – Sólar

Hagvangur  •  Onsite  •  8 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Sólar leitar að sviðsstjóra sölu- og markaðssviðs sem ber ábyrgð á heildarstýringu sölu- og markaðsmála fyrirtækisins. Um er að ræða lykilhlutverk þar sem viðkomandi mun leiða áframhaldandi vöxt Sólar, styrkja viðskiptasambönd og móta skýra markaðs- og sölustefnu í takt við framtíðarsýn fyrirtækisins.

Helstu verkefni

  • Ábyrgð á rekstri og uppbyggingu sölu- og markaðssviðs
  • Móta og innleiða sölu- og markaðsstefnu sem styður við vöxt fyrirtækisins
  • Leiða teymi og tryggja skýra stefnu og samræmda framkvæmd
  • Þróun og viðhald viðskiptasambanda við hagsmunaaðila
  • Greining á markaði, samkeppni og tækifærum til vaxtar
  • Eftirlit með árangri, mælingum og markmiðasetningu
  • Náin samvinna við önnur svið, m.a. þjónustu og rekstur
  • Framþróun í notkun gagna og tækni til að efla sölu og markaðsstarf
  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfnikröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. viðskiptafræði, markaðsfræði eða sambærilegt
  • Reynsla af stjórnun í sölu- og/eða markaðsumhverfi
  • Reynsla af stefnumótun og rekstri
  • Leiðtogahæfni og hæfni til að byggja upp árangursdrifið teymi
  • Framúrskarandi samskipta- og samningahæfni
  • Greiningarhæfni og geta til að vinna með gögn og mælikvarða
  • Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og rík þjónustulund

Sólar ehf er eitt stærsta ræstingafyrirtæki landsins með tæplega 500 starfsmenn. Gott starfsumhverfi er lykillinn að árangri og leggur fyrirtækið ríka áherslu á jákvæð samskipti, samheldni og faglegan vöxt. Sólar er leiðandi á sviði umhverfismála og var fyrst ræstingafyrirtækja til að hljóta heimild til að nota Svaninn, norræna umhverfismerkið. Fyrirtækið leggur mikinn metnað í þjálfun starfsfólks og öflugt gæðaeftirlit tryggir framúrskarandi þjónustu.

Nánari upplýsingar

Hlynur Atli Magnússon – hlynur@hagvangur.is

Hagvangur

About Hagvangur

Hagvangur er ráðninga- og ráðgjafafyrirtæki sem stofnað var árið 1971 og býður þjónustu við flest það er snýr að mannauðsmálum.

Hagvangur þjónustar árlega hundruði viðskiptavina við allt sem snýr að ráðningum og mannauðsráðgjöf. Starfsfólk Hagvangs hefur unnið mikið brautryðjendastarf í ráðningum og ráðgjöf á Íslandi og höfum við áralanga þekkingu og reynslu af atvinnulífinu. Það ásamt breiðu tengslaneti og góðu orðspori eru meðal þeirra þátta sem við erum gríðarlega stolt af.

Industry
Consulting & Advisory
Company Size
11-50 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
1971
Social Media