Hagvangur

Sviðsstjóri á Akureyri - HD

Hagvangur  •  Akureyri, IS (Onsite)  •  3 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

HD leitar að öflugum sviðsstjóra til að leiða rekstur starfsstöðvar félagsins á Akureyri. Við leitum að einstaklingi með góða þekkingu á málmiðnaði, reynslu af verkstjórn og hæfni til að leiða teymi, efla þjónustu og byggja upp sterk tengsl við viðskiptavini á svæðinu. Sviðsstjóri heyrir beint undir forstjóra HD.

Helstu verkefni

  • Ábyrgð á daglegum rekstri starfsstöðvar HD á Akureyri
  • Samskipti við viðskiptavini, birgja og samstarfsaðila
  • Stjórnun og stuðningur við starfsfólk
  • Yfirumsjón með verkefnum, reikningagerð og kostnaðareftirliti
  • Eftirlit með viðhaldi og nýtingu véla og búnaðar
  • Þátttaka í uppbyggingu, þróun og stefnumótun fyrirtækisins

Hæfnikröfur

  • Fagréttindi í iðngrein eða menntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Reynsla af stjórnun, rekstri eða verkstjórn
  • Þekking og reynsla á sviði vélbúnaðar og viðhalds
  • Góð tölvukunnátta
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og góð samskiptahæfni
  • Góð íslensku- og enskukunnátta

HD Ehf. er öflugt iðn- og tækniþjónustufyrirtæki með um 150 starfsmenn. Fyrirtækið sérhæfir sig í vélsmíði, stálsmíði og tækniþjónustu og þjónustar meðal annars sjávarútveg, fiskeldi, orkuiðnað og stóriðju. Á starfsstöð HD á Akureyri starfar samhentur hópur sérfræðinga við fjölbreytt og krefjandi verkefni fyrir viðskiptavini á svæðinu.

Nánari upplýsingar

Þórdís Sif Arnarsdóttir – thordis@hagvangur.is

Hagvangur

About Hagvangur

Hagvangur er ráðninga- og ráðgjafafyrirtæki sem stofnað var árið 1971 og býður þjónustu við flest það er snýr að mannauðsmálum.

Hagvangur þjónustar árlega hundruði viðskiptavina við allt sem snýr að ráðningum og mannauðsráðgjöf. Starfsfólk Hagvangs hefur unnið mikið brautryðjendastarf í ráðningum og ráðgjöf á Íslandi og höfum við áralanga þekkingu og reynslu af atvinnulífinu. Það ásamt breiðu tengslaneti og góðu orðspori eru meðal þeirra þátta sem við erum gríðarlega stolt af.

Industry
Consulting & Advisory
Company Size
11-50 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
1971
Social Media