Job Description
Ungbarnaleikskólinn Sunnuhvoll auglýsir eftir leikskólakennara. Við erum tveggja deilda leikskóli með 27 börn á aldrinum 12- 24 mánaða. Einkunnarorð okkar eru: Fagmennska, umhyggja og gleði sem við viljum að endurspeglist í öllu okkar starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinnur með og undir stjórn deildarstjóra
- Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.
Menntun, hæfni og reynsla
- Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár í menntunarfræði leikskóla
- Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Góð samskiptahæfni
- Sveigjanleiki
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.
Hlunnindi í starfi
- Full stytting og hluti af styttingu safnað í frídaga (sem teknir eru utan sumarorlofstímabils)
- Leikskólinn er lokaður í dymbilviku og 2. janúar vegna styttingar starfsfólks
- Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30 mánud.- fimmtud. og 7:30-16:00 á föstudögum
- Fimm skipulagsdagar á ári og eru samræmdir í leik- og grunnskólum Garðabæjar
- 50% stöðugildi inn á yngstu deildir leikskóla ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild
- 25% stöðugildi á hverri deild vegna snemmtækrar íhlutunar
- Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf
- Hægt er að sækja um í þróunarsjóð leikskóla til að stuðla að framþróun og öflugra innra starfi í leikskólum
- Starfsmannaafsláttur af leikskólagjöldum og forgangur inn í leikskóla fyrir börn starfsmanna búsetta í Garðabæ
- Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt árskort í sundlaugar bæjarins
- Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt bókasafnskort í Bókasafn Garðabæjar ásamt fríu menningarkorti í Hönnunarsafn Íslands
- Eftir sex mánuði í starfi getur starfsfólk fengið heilsuræktarstyrk
Um er að ræða 100 % stöðu sem er laus sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til og með 2. júní 2026.
Nánari upplýsingar um starfið veita Guðrún Brynjólfsdóttir leikskólastjóri í síma 591-9380 eða á netfanginu sunnuhvoll@sunnuhvoll.is og Ragnheiður Sívertsen staðgengill leikskólastjóra á ragnheidurs@sunnuhvoll.is.
Samkvæmt lögum verða umsækjendur sem eru ráðnir að skrifa undir heimild til upplýsingaöflurnar úr sakaskrá.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélags.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.