Skagafjordur

Sundlaugarvörður, íþróttamiðstöð Varmahlíð

Skagafjordur  •  Onsite  •  10 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Íþróttamiðstöðin í Varmahlíð óskar eftir að ráða karlkyns einstakling í lausa stöðu sundlaugarvarðar. Unnið er í vaktavinnu. Staðan er laus frá 1. ágúst 2026.

Í starfinu felst m.a. öryggisgæsla við sjónvarpsskjá og sundlaug, baðvarsla, þrif og afgreiðsla. Starfið felur í sér talsverð samskipti við gesti laugarinnar.

Hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur.
  • Reynsla af sambærilegum störfum er kostur.
  • Almenn tölvuþekking og færni.
  • Lipurð í mannlegum samskiptum, háttvísi og kurteisi.
  • Jákvæðni, starfsgleði, frumkvæði og sveigjanleiki.
  • Samviskusemi og stundvísi.
  • Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri.
  • Hreint sakavottorð skv. æskulýðslögum.

Vegna hlutlægra þátta sem tengjast starfinu, er sérstaklega óskað eftir karlmanni í starfið, í samræmi við 19. gr. laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.

Nánari upplýsingar um störfin veitir: Þorvaldur Gröndal, leiðtogi frístunda- og íþróttamála, 455 6033/660 4639, valdi@skagafjordur.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag. Starfsheiti sem um ræðir er sundlaugarvörður.

Einungis er tekið við rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf).

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Skagafjordur

About Skagafjordur

In Skagafjörður it is possible to enjoy both the rich cultural life and lifestyle. The district is an ideal place to enjoy Icelandic nature, horsemanship as well as activities and events for the whole family. Historical sites are many, including museums and exhibits. On this website you can find what Skagafjörður has to offer and you are welcome to contact or visit the Information centre in Varmahlíð or Sauðárkrókur that will assist you to plan a great holiday in Skagafjörður.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
11-50 employees
Headquarters
Sauðárkrókur, IS
Year Founded
1998
Social Media