
Sundlaug Akureyrar og Íþróttamiðstöð Glerárskóla óska eftir að ráða starfsfólk í hlutastörf og fullt starf. Um er að ræða 20 – 100% starfshlutfall. Unnið er á báðum stöðum á dag-, kvöld- og helgarvöktum.
Annars vegar er um ótímabundin störf að ræða og hins vegar tímabundin afleysingarstörf.
Helstu verkefni eru:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Sundlaug Akureyrar er reyklaus vinnustaður.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar stéttarfélags.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Pálína Dagný Guðnadóttir í síma 461-4455 eða í tölvupósti: palinadg@akureyri.is
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is
Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í Þjónustuveri Akureyrarbæjar Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til og með 31. júlí 2026.
